Valur tilkynnti rétt í þessu að Willum Þór Þórsson sé hættur þjálfun liðsins.
Valur mætir FH á Hlíðarenda annað kvöld en ekkert hefur verið gefið út um hver stýrir liðinu í þeim leik þó að líklegt sé að aðstoðarþjálfarinn Þorgrímur Þráinsson verði við stjórnvölinn. Þorgrímur hefur stýrt Val í síðustu leikjum á meðan Willum hefur verið á þjálfaranámskeiði erlendis. Willum kom hingað til lands að nýju á mánudag en hafði ekki stýrt liðinu á æfingu þegar yfirlýsingin kom frá honum og Val í dag.
Willum Þór tók við þjálfun Vals haustið 2004 eftir að hafa áður þjálfað KR-inga. Árið 2006 gerði Willum lið Vals að bikarmeisturum og 2007 stýrði hann liðinu til sigurs í Landsbankadeildinni. Hann skrifaði undir samning út árið 2012 við Val 18. september síðastliðinn.
Willum Þór Þórsson þjálfari Íslandsmeistara Vals hefur svo sannarlega átt farsælan feril og titlarnir hafa komið í hús hverjir á fætur öðrum. Á aðeins fjórum árum náði Willum að vinna alla þá titla sem í boði eru í íslenskri knattspyrnu fyrir meistaraflokksþjálfara í efstu deild.
Árið 2004 gerði Willum, KR-inga að Reykjavíkurmeisturum eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 4-3. Árið 2005 var Willum kominn til liðs við Valsmenn og gerði þá að Bikarmeisturum eftir sigur á Fram í úrslitaleik 1-0, það var Baldur Ingimar Aðalsteinsson sem skoraði sigurmarkið.
Í maí mánuði árið 2006 höfðu Valsmenn sigur á FH undir stjórn Willums í úrslitaleik Meistarakeppni KSÍ og árið 2007 tókst Willum að landa sjálfum Íslandsmeistatitlinum með Valsmönnum eftir æsispennandi lokasprett við FH-inga. Að sjálfsögðu var Willum kjörinn þjálfari ársins á árlegu lokahófi KSÍ þetta sama ár.
Valur varð Íslandsmeistari innanhúss í mars 2008 undir hans stjórn þegar þeir sigruðu lið Víðis í Garði. Áfram héldu Valsmenn á sigurbraut og unnu Atlantic Cup þegar þeir sigruðu færeysku meistarana í NSÍ.
Á Verkalýðsdeginum 1. maí 2008 stýrði Willum Þór síðan Valsmönnum til sigurs í Lengjubikarnum það ár. Áður hafði hann unnið allar deildir með Haukum og Þrótti.
Knattspyrnufélagið Valur og þjálfari meistaraflokks, Willum Þór Þórsson, hafa komist að samkomulagi um að ljúka farsælu samstarfi.
Knattspyrnufélagið Valur óskar Willum velfarnaðar í framtíðinni og þakkar honum fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.


