Heimild: BBC
Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar í Burnley halda áfram að styrkja leikmannahópinn fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni en David Edgar hefur gert fjögurra ára samning við félagið.
Þessi 22 ára gamli varnarmaður hefur leikið með Newcastle undafnarin ár en samningur hans við félagið rann út í sumar.
Edgar, sem er frá Kanada, lék ellefu leiki með Newcastle á síðustu leiktíð.
Edgar er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Burnley á tveimur dögum en í gær komu Steven Fletcher og Tyrone Mears til félagsins.




