Heimild: BBC
Aaron Ramsey miðjumaður Arsenal hefur gert nýjan langtímasamning við félagið.
Ramsey, sem er 18 ára, kom til Arsenal frá Cardiff á fimm milljónir punda fyrir ári síðan en hann lék 22 leiki á síðustu leiktíð.
,,Hann stóð sig vel og sýndi að hann er klár leikmaður með mikil gæði," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.
Þá hefur Arsenal ákveðið að gera ekki nýjan samning við átta leikmenn og munu þeir hverfa á braut í sumar.
Þeirra á meðal er Amaury Bischoff sem kom frá Werder Bremen fyrir ári síðan og lék fjóra leiki með Arsenal á síðustu leiktíð.

