Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 15:34
Magnús Már Einarsson
Þorgrímur Þráinsson stýrir Val gegn FH á morgun
Þorgrímur Þráinsson í leik gegn ÍBV á dögunum.
Þorgrímur Þráinsson í leik gegn ÍBV á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Þorgrímur Þráisson mun stýra Val gegn FH í Pepsi-deildinni annað kvöld. Ótthar Edvardsson yfirmaður afrekssviðs Vals staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.

Valur og Willum Þór Þórsson þjálfari liðsins komust fyrr í dag að samkomulagi um að hann myndi hætta störfum.

Þorgrímur hefur verið aðstoðarþjálfari Vals í sumar og hann hefur stýrt Val í síðustu leikjum á meðan Willum hefur verið á þjálfaranámskeiði erlendis.

Valsmenn eru farnir að leita að eftirmanni Willum en Atli Eðvaldsson og Sigurður Jónsson hafa verið orðaðir við þjálfarastöðuna. Ótthar vildi ekki nefna nein nöfn en staðfesti að leit að eftirmanni Willum sé hafinn.

,,Ég get ekki tjáð mig um það við hvern er rætt eða hvað við erum að hugsa. Það er bara vinna í gangi og ég get ekki tjáð mig að svo stöddu," sagði Ótthar við Fótbolta.net í dag.
Slapp
banner