Heimild: FIFA
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu féll niður um eitt sæti á heimslista FIFA sem gefinn var út í dag.
Liðið féll niður úr 92. sæti listans niður í það 93. Landslið Kanada er í sæti númer 92 og Írak er í 94. sæti.
Brasilía hoppaði úr fimmta sæti í það fyrsta og Spánverjar féllu niður í annað sætið. Hér að neðan má sjá 1-10. sæti.
1. Brasilía
2. Spánn
3. Holland
4. Ítalía
5. Þýskaland
6. Rússland
7. England
8. Argentína
9. Frakkland
10. Króatía


