Heimild: Sky
Brynjar Björn Gunnarsson, miðjumaður Reading, hefur gert nýjan eins árs samning við félagið.
Brynjar Björn, sem er 33 ára, var með samning þar til í sumar en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Reading.
,,Það var aldrei vafi. Ég vildi alltaf vera áfram og félagið vildi halda mér svo það var frekar auðvelt að klára þetta," sagði Brynjar Björn en hann kom til Reading frá Watford árið 2005.
,,Hann er mjög góður leikmaður. Hann er mjög fjölhæfur og sýnir gott fordæmi fyrir yngri leikmenn," sagði Nick Hammond yfirmaður knattspyrnumála hjá Reading.
,,Hann mun spila stórt hlutverk á næsta tímabili," bætti Hammond við.

