Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. júlí 2009 17:48
Jóhann Óli Eiðsson
Heimild: Sky Sports 
Ruben De la Red frá út keppnistímabilið
Ruben De la Red, miðjumaður Real Madrid, mun að öllum líkindum ekki leika neitt með liðinu á komandi keppnistímabili en læknum hefur enn ekki tekist að komast að því hvað hrjáir hann.

De la Red hefur ekkert leikið síðan í október á seinasta ári er hann hneig niður í leik í spænsku bikarkeppninni en þeir læknar sem hann hefur leitað til, hafa ekki hugmynd um hvað gerði það að verkum að hann féll í grasið.

Atvikið vakti mikla athygli á Spáni enda aðeins ár síðan að Antonio Puerta féll í grasið og lést þremur dögum síðar á sjúkrahúsi.

De la Red hefur sagt að hann vonist einhvern tíman til að geta snúið aftur á völlinn en í augnablikinu verður hann að kíkja til læknis á tveggja mánaða fresti og vona að það komi í ljós hvað það er sem hefur haldið honum frá keppni.

,,Það sem hrjáir mig, hefur ekkert nafn og ef það hefur nafn þá vitum við ekki hvaða nafn það er eða hvernig það á að meðhöndla það." sagði De la Red í samtali við Marca.
Slapp