Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 17:39
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Cristiano Ronaldo brjálaðist út í ljósmyndara
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, varð æfur þegar að ljósmyndari veitti honum eftirför í Lisabon í Portúgal í síðustu viku.

Ljósmyndarinn vildi ekki láta Ronaldo í friði og veitti honum eftirför sem varð til þess að Portúgalinn stoppaði bíl sinn.

,,Hann (Ljósmyndarinn) elti mig á bíl frá Ritz hótelinu. Móðir mín var með mér í bílnum og þeir tóku myndir af okkur. Eltingarleikurinn fór svo í taugarnar á móður minni að ég varð að stoppa og sannfæra þá um að láta okkur í friði," sagði Ronaldo.

Fregnir herma að Ronaldo hafi sparkað í bíl ljósmyndarans en 17 ára stúlka sem var í bíl hans varð einnig fyrir minniháttar meiðslum.

Stúlkan mun hafa lagt fram kvörtun vegna atviksins en talsmaður lögreglunnar í Lisabon varðist allra frétta af málinu.
Slapp