Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. júlí 2009 17:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Lyon samþykkir tilboð Real Madrid í Karim Benzema
Lyon hefur samþykkt tilboð Real Madrid í framherjann Karim Benzema en franska félagið staðfesti þetta síðdegis í dag.

Ýmsar fréttir hafa verið varðandi framtíð Benzema í dag en nú hefur Lyon staðfest að samkomulag hefur náðst við Real Madrid.

Talið er að tilboð Real Madrid hljóði upp á 30 milljónir punda en það gæti hækkað upp í 35 milljónir punda síðar meir.

Benzema hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Arsenal í sumar en nú er útlit fyrir að hann gangi til liðs við Real Madrid.

Þar með verður hann fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar en Cristiano Ronaldo og Kaka komu á samanlagt 148 milljónir punda auk þess sem varnarmaðurinn Raul Albiol gekk til liðs við Madridinga á dögunum.

Benzema, sem er 21 árs, hefur leikið með aðalliði Lyon frá árinu 2004 en hann hefur skorað 66 mörk í 149 leikjum með liðinu.
Slapp
banner
banner