Heimild: BBC
Fjórir leikmenn fóru frá Manchester City í dag eftir að félagið ákvað að endurnýja samninga þeirra ekki. Allir fjórir eru þeir í eldri kanntinum.
Þetta eru bakverðirnir Danny Mills og Michael Ball, miðjumaðurinn Dietmar Hamann og sóknarmaðurinn Darius Vassell.
Þrír aðrir leikmenn fóru frá City í dag, unglingarnir Glauber Berti, Richard Martin og Daniel Sturridge.
Sturridge ákvað að samþykkja ekki tilboðið frá uppeldisklúbbi sínum, heldur skrifa frekar undir hjá Chelsea en gengið verður frá þeim samningum á næstunni.


