Fylkir 3 - 0 ÍBV
1-0 Halldór Arnar Hilmisson ('3)
2-0 Kjartan Ágúst Breiðdal ('21)
3-0 Albert Brynjar Ingason ('33)
1-0 Halldór Arnar Hilmisson ('3)
2-0 Kjartan Ágúst Breiðdal ('21)
3-0 Albert Brynjar Ingason ('33)
Leik lokið: Leik Fylkis og ÍBV er lokið með 3-0 sigri Árbæinganna. Þeir áttu frábæran fyrri hálfleik þar sem þeir kláruðu Eyjamennina algerlega á fyrsta hálftímanum en í seinni hálfleik virtust þeir ekki ætla að leggja mikið á sig til að bæta við. Fylkismenn eru nú komnir í 2. sæti deildarinnar með 20 stig en ÍBV er enn í því þriðja neðsta með sex stig. Umfjöllun og viðtöl eru væntanleg.
88. mín: Ingi Rafn hefur komið með ferskan blæ inn í lið Eyjamanna og átti hann rétt í þessu skot af löngu færi sem Fjalar þurfti aðeins að hafa fyrir að verja. Annars eru áhorfendatölurnar komnar her á Fylkisvelli og er fjöldi áhorfenda 936.
86. mín: Fylkismenn eru að gefa eftir og Eyjamennirnir hrökkva í gírinn við það. Ólafur Ingi Stígsson í vörn Fylkis á lélega hreinsun og endar boltinn í löppunum á Viðari Erni Kjartanssyni sem dúndrar boltanum rétt yfir markið. Aðeins að lifna yfir Eyjamönnum en staðan er 3-0 og mjög lítið eftir.
84. mín: Úff, manni verður nú bara illt í hjartanu á því að horfa á þetta. Varamaðurinn Ingi Rafn átti glæsilegan sprett upp hægri kantinn og gaf fyrir. Boltinn endaði hjá öðrum varamanni, Elíasi Inga Árnasyni. Elías var í frábæru skotfæri en skot hans fór naumlega framhjá markinu og lýsir þetta kvöldi Eyjamanna bara í hnotskurn, ekkert hefur gengið upp.
83. mín: Það munar engu að Fylkismenn komist í 4-0 eftir góðan sprett frá Andrési Má Jóhannessyni inni í teig en varnarmaður ÍBV grípur glæsilega inn í og fer fyrir skot Andrésar á hárréttum tíma. Skömmu síðar eiga Eyjamenn ágætis skot en Fjalar vel það auðveldlega.
79. mín: Ósköp rólegt allt saman hér í Árbænum. Eyjamenn aðeins að taka við sér en þá vantar alltaf herslumuninn og oft meira en það.
74. mín: Fylkir gerir einnig sína síðustu breytingu. Kjartan Andri Baldvinsson kemur inn fyrir Ingimund Níels Óskarsson.
73. mín: Eyjamenn gera sína þriðju skiptingu. Út af fer Bjarni Rúnar Einarsson og inn fer Ingi Rafn Ingibergsson. Tekst honum að skora aftur líkt og hann gerði í seinasta deildarleik gegn Fylki? Og ef svo er, er það samt ekki of lítið og of seint?
71. mín: Tony Mawejje, sem hefur reyndar verið besti leikmaður ÍBV í leiknum, reynir að vera sá fyrsti til að skjóta knetti í gegnum hlut þegar hann lætur skot ríða af með sjö Fylkismenn fyrir framan sig. Skotið lendir skiljanlega í einum þeirra og mistókst tilraunin því hrapallega. Þetta skot sýnir kannski best hversu örvæntingarfullir Eyjamennirnir eru orðnir.
68. mín: Eyjamenn gera sína aðra skiptingu. Út fer Pétur Runólfsson og inn kemur Elías Ingi Árnason.
66. mín: Seinni hálfleikurinn hér á Fylkisvelli hefur ekki verið mikið fyrir augað. Svo virðist sem að Fylkismenn séu orðnir saddir og að Eyjamenn telji sig ekki eiga neina möguleika á að fá neitt úr þessum leik. Það gerðist þó eitt skemmtilegt atriði rétt í þessu, Kjartan Ágúst Breiðdal átti gott skot sem Albert vrði í horn.
63. mín: Út af fer Albert Brynjar Ingason og inn í hans stað kemur Jóhann Þórhallsson.
59. mín: Halldór Arnar Hilmisson er tekinn af velli og inn í hans stað kemur Theodór Óskarsson.
56. mín: Eyjamenn halda áfram að vera grátlega lélegir sóknarlega og eiga þeir hverja feilsendinguna á fætur annarri. Átakanlegt að horfa á þetta oft á tíðum hvernig fyrirgjafir og allt sem þeir gera rennur út í sandinn. Fylkismenn virðast þó hafa aðeins slakað á klónni.
53. mín: Fylkismenn hársbreidd frá því að skora eftir hornspyrnu en boltinn fer naumlega yfir markið. Síðari hálfleikurinn byrjar á rólegu nótunum.
51. mín: Halldór Arnar fær gult spjald.
49. mín: Hér er smá "update" af Yngva Magnúsi Borgþórssyni sem fór meiddur af velli áðan, alblóðugur. Hann fékk nögl af öðrum leikmanni inn í nefið og það myndaðist við það skurður. Fyrst var talið að hann hafi fengið takka af öðrum leikmanni í andlitið því skurðurinn var svo stór en nú er komið í ljós að þetta var nögl sem fór í nefið. Þar sem skurðurinn var svo stór var ekki hægt að laga þetta á staðnum og því var hann fluttur á slysasdeild þar sem hann er núna.
46. mín: Síðari hálfleikurinn er hafinn og verður forvitnilegt að sjá hvort Eyjamenn taki sig á eða hvort að Fylkismennirnir haldi áfram að dæla inn mörkum. Þeir hafa nú þegar skorað sjö mörk hérna heima einu sinni á tímabilinu og ekki mikið í leik Eyjamanna sem sýndi að það væri ógerlegt að endurtaka það afrek.
Hálfleikur: Já, óvenju dapurt kvöld hjá ÍBV. Þeir hafa beinlínis ekkert getað í kvöld og gætu Fylkismenn verið fjórum eða fimm mörkum yfir. Þeir mega þó eiga það Eyjamennirnir að þeir áttu ágætis kafla rétt fyrir leikhlé en þess utan bendir ekkert til annars en að þeir séu á beinni niðurleið ef spilamennskan verður svona áfram. Annars er það að frétta að tónlistin hérna á Árbæjarvellinum er alveg skelfileg og glymur hvert afleitt Fylkislagið á hverju öðru í hátalarakerfinu.
Hálfleikur: Þá hefur verið flautað til leikhlés hér á Árbæjarvellinum og hefðu Eyjamenn sjálfsagt viljað heyra flautið svona hálftíma fyrr. Þeir geta vonandi endurskipulagt sig í hálfleik, enda hafa fyrstu 45 mínúturnar verið algjör einstefna af hálfu Fylkis. Árbæingarnir hafa leikið glimrandi vel og hafa ÍBV ekki átt nein svör.
45+2 mín: Þó svo að undirritaður hafi sjaldan eða jafnvel aldrei séð jafn dapra frammistöðu í efstu deild og hjá liði ÍBV í fyrri hálfleik verð ég að viðurkenna að spilamennska þeirra seinustu mínútur síðari hálfeiksins hefur verið að nálgast ásættanlegt. Rétt í þessu fengu þeir aukaspyrnu á hættulegum stað og uppskar Tómas Þorsteinsson gult spjald fyrir brotið. Spyrnan fór þó framhjá markinu.
44. mín: ÍBV gerir breytingu. Yngvi Magnús Borgþórsson fer út af vegna meiðsla en inn kemur Arnór Eyvar Ólafsson.
41. mín: Stundum koma upp þeir dagar þar sem ekkert fellur með manni og þetta virðist vera einn af þeim fyrir Eyjarmenn. Bjarni Rúnar Einarsson átti góðan sprett og renndi boltanum á Viðar Kjartansson sem átti gott skot sem fór framhjá Fjalari markverði. Óheppnin var þó með viðari og boltinn endaði í stönginni og út. Hrikalega svekkjandi.
38. mín: Ásgeir Börkur á skot en það er svo langt yfir að það endar nánast í Árbæjarlauginni.
35. mín: Stórskotahríðin heldur áfram. Tómas Þorsteinsson á frábæra sendingu inn í teig á Ingimund Níels sem fær nægan tíma til að athafna sig og snúa sér og láta skotið vaða af en Albert varði ágætlega og hélt boltanum, enda skotið ekki nægilega gott.
33. mín: MAAAAARK!!! Þetta verður laaaaaangur leikur fyrir Eyjamenn. Fylkismenn voru að bæta við marki og það var í rándýrari kantinum! Andrés Jóhannesson geystist upp hægri kantinn og náði þar langri sendingu og gaf fyrir í fyrsta. Boltinn fór beint fyrir lappirnar á Alberti Brynjari Ingasyni sem smellti honum í fyrstu snertingu í hægra hornið. Gersamlega óverjandi fyrir nafna hans í markinu en Árbæingarnir einfaldlega að niðurlægja Vestmannaeyingana hér.
30. mín: Hálftími liðinn af leiknum og staðan 2-0 fyrir Fylki og er ÍBV liðið hreint út sagt arfaslakt. Þeir áttu ágætis spil inni í teig Fylkismanna en þeim appelsinugulu tókst að lokum að bægja hættunni frá.
26. mín: Leikurinn er algerlega eign Fylkismanna. Rétt í þessu átti Ingimundur Níels mjög gott skot sem fór rétt framhjá samskeytunum. Albert hefði aldrei náð þessum bolta og munaði engu að staðan væri orðin 3-0.
21. mín: MAAAAAARK!! Árbæingarnir eru komnir í 2-0 og var þar á ferðinni Kjartan Ágúst Breiðdal. Ingimundur Níels Óskarsson fékk þá inn frábæra sendingu og var nánast kominn einn á móti markverði. Albert Sævarsson varði aftur á móti meistaralega frá honum en Kjartan var mættur og hirti frákastið og jók forystu heimamanna.
20. mín: Aðeins að lifna yfir liði Eyjamanna og þeir eru farnir að vera aðeins meira með boltann. Þeim gengur þó illa að halda honum og hafa ekki verið mjög ógnandi fram á við.
16. mín: Eyjamenn hafa gullið tækifæri til að komast í skyndisókn en klúðra því á grátlegan máta. Þeir eru þó aðeins farnir að hressast.
13. mín: Þetta gengur þokkalega hjá Fylkismönnum og voru þeir nær því að bæta við marki. Andrés Már Jóhannesson kom með fyrirgjöf sem endaði á kollinum á Alberti Brynjari Ingasyni sem skallaði boltann naumlega framhjá.
10. mín: Minnstu munar að boltinn rati aftur í mark Eyjamanna en varnarmanni þeirra tekst að bjarga á línu.
7. mín: Boltasækjarnir ekki alveg að vinna sína vinnu nægilega vel í Árbænum og eru leikmenn yfirleitt lengi að fá boltann aftur í leik eftir að hann fer af vellinum. Þegar hann loksins kemur, þá fylgir annar með í kaupbæti. Annars eru Fylkismenn ívið sterkari fyrstu mínúturnar en Eyjamenn áttu rétt í þessu ágætis skot.
3. mín: MAAAAAAAARK!!! Fylkismenn eru komnir yfir strax í byrjun!!!! Boltinn barst fram og geystist Kjartan Ágúst Breiðdal í átt að knettinum. Albert Sævarsson markvörður fór á móti honum og náði á undan í boltann fyrir utan teig. Það fór þó ekki betur en svo að boltinn fór af Alberti og beint fyrir lappir Halldórs Arnas Hilmissonar sem skoraði á opið markið. Skelfilegur varnarleikur hjá Eyjarmönnum sem voru alveg steinsofandi á verðinum.
19.16: Leikmenn eru leiddir inn á völlinn af Jóhannesi Valgeirssyni dómara og aðstoðarmönnum hans Sigurður Óli Þórleifsson og Oddbergur Eiríksson. Skömmu síðar er flautað til leiks og byrja Fylkismenn með boltann.
19.13: Ein breyting var gerð á liði Fylkis frá því í seinasta leik gegn Þrótti. Theodór Óskarsson fór út og í stað hans kom Kjartan Ágúst Breiðdal inn.
Þrjár breytingar voru á liði ÍBV frá því í leiknum gegn FH. Þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson, Viðar Örn Kjartansson og Bjarni Rúnar Einarsson komu inn í liðið fyrir þá Gauta Þovarðarson, Inga Rafn Ingibergsson og Eið Aron Sigurbjörnsson.
19.05: Byrjunarliðin eru komin í hús og má sjá þau hér neðst.
18.45: Komið þið sælir kæru lesendur og verið velkomnir í beina textalýsingu Fótbolti.net úr leik Fylkis og ÍBV í 10. umferð Pepsi-deildar karla. Við munum að sjálfsögðu fylgjast grannt með gangi mála í leiknum og láta ykkur vita hvað er að gangi á Fylkisvelli hverju sinni.
Þessi lið mættust síðast í efstu deild árið 2006 í lokaumferð Landsbankadeildar karla það ár og bar ÍBV 2-0 sigur úr bítum í Vestmannaeyjum með mörkum frá Bjarna Rúnari Einarssyni og Inga Rafni Ingibergssyni. Það dugði þó ekki til að bjarga liðinu frá fallsæti og voru þeir í 1. deildinni þar til tímabilsins núna.
Byrjunarlið Fylkis: Fjalar Þorgeirsson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Ólafur Ingi Stígsson, Ingimundur Níels Óskarsson, Andrés Már Jóhannesson, Kjartan Ágúst Breiðdal, Albert Brynjar Ingason, Tómas Þorsteinsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Halldór Arnar Hilmisson.
Byrjunarlið ÍBV: Albert Sævarsson, Christopher Clements, Matt Nicholas Paul Garner, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Andri Ólafsson, Yngvi Magnús Borgþórsson (44. Arnór Eyvar Ólafsson), Pétur Runólfsson, Viðar Örn Kjartansson, Tony Mawejje, Bjarni Rúnar Einarsson, Ajay Leitch-Smith.




