Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 21:58
Alexander Freyr Tamimi
Kjartan Ágúst Breiðdal: Við getum unnið alla leiki
Kjartan Ágúst í baráttunni við Matt Garner.
Kjartan Ágúst í baráttunni við Matt Garner.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Ágúst Breiðdal leikmaður Fylkis var ánægður með sannfærandi 3-0 sigur liðsins á ÍBV í 10. umferð Pepsi-deildar karla í dag. Hann var þó ekki eins sáttur með seinni hálfleikinn.

„Við vorum að spila alveg ótrúlega vel. Við vorum að komast mikið á bakvið þá, góð hlaup og svona. Menn komu bara sterkir inn í þetta í byrjun og það var bara lagt upp með að keyra á þá strax og það virkaði. Svo datt þetta aðeins í seinni hálfleik og við vorum heppnir að fá ekki á okkur mark,“ sagði Kjartan við Fótbolti.net eftir leik.

Aðspurður hvort að leikmenn hafi bara verið orðnir saddir eftir að hafa komist í 3-0 í fyrri hálfleik telur Kjartan að það hafi ekki verið vandamálið.

„Ég trúi því nú ekki, ætli það sé ekki bara þreyta eða eitthvað. Það er bara oft þannig þegar maður kemst yfir að maður dettur aðeins til baka og verður kærulaus en þetta hafðist,“ bætti hann við og kvaðst einnig vera mjög ánægður með gengi liðsins í deildinni hingað til, en Fylkir situr í 2. sætinu með 20 stig.

„Þetta var ekki alveg það sem maður bjóst við en við erum búnir að sjá það að við getum unnið alla leiki. Þetta gengur vel.“
Slapp
banner
banner