Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV var gríðarlega ósáttur með 3-0 tap liðsins gegn Fylki í 10. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld og bölvaði hann þá sérstaklega fyrri hálfleiknum. Hann skellir sökinni þó ekki alfarið á sína leikmenn og telur hann að hann sé sjálfur að gera eitthvað rangt í augnablikinu.
„Þetta er þriðji leikurinn í röð sem við fáum á okkur mark á fyrstu tíu mínútunum – þriðji leikurinn í röð. Það segir mér það að það er eitthvað rangt sem ég er að gera, menn mæta bara ekki með rétta hugarfarið í leikinn. Ég verð bara að skoða það, það er ekki endalaust bara hægt að skamma strákana fyrir það. Það er eitthvað sem gerist, við mætum ekki með hausinn í lagi,“ sagði Heimir við Fótbolti.net eftir leikinn.
„Fyrri hálfleikurinn var bara skammarlegur og ég bara skammast mín fyrir hann. Við töluðum um það í hálfleik að við skömmuðumst okkar bara fyrir þessa frammistöðu og hugarfarið í seinni hálfleik var að vera okkur ekki til meiri skammar en í fyrri hálfleik. Það hefur aldrei gerst að ég skammist mín fyrir að þjálfa ÍBV en í dag gerði ég það og mig langaði bara heim í hálfleik.“
ÍBV liðið var mætt frekar seint á svæðið í dag og gæti það hafa haft áhrif á spilamennsku þeirra í Árbænum. Heimir telur þó að vandamálið liggi annars staðar en í ferðalaginu.
„Við komum hingað mjög seint, 45 mínútum fyrir leik, og þetta er alls ekki nógu góður undirbúningstími. En það á ekki að breyta neinu, menn flugu hingað með hausinn með sér og hann á að vera á líkamanum þegar við byrjum að spila. Ég veit að strákarnir skammast sín fyrir þetta og að þeir eiga eftir að taka sig til í hausnum eftir þennan leik,“ sagði Heimir.
Eyjarmönnum tókst að halda hreinu í síðari hálfleiknum og áttu þeir meðal annars skot í stöng. Heimir var ágætlega sáttur með seinni hálfleikinn.
„Við náðum ágætis spilköflum í seinni hálfleiknum og sköpuðum okkur fín færi, en það er ekkert sjálfstraust í liðinu. Menn hafa ekki trú á því að það sem þeir eru að gera eigi eftir að heppnast. En fínir spilkaflar og við náðum að spila þá nokkrum sinnum vel í gegn. En þegar þú hefur ekki trúna og hefur ekki hausinn með þér, þá gengur ekkert upp.“
Aðspurður hvort að ÍBV eigi erindi í efstu deild svaraði Heimir þessu:
„Ekki miðað við spilamennskuna í dag, það er alveg klárt. En ég hef trú á þessum strákum og ég ætla ekkert að missa þá trú þó að illa gangi í augnablikinu. Við erum náttúrulega að spila á erfiðum útivelli og Fylkismenn eru búnir að vera mjög góðir.“
„Við skulum heldur ekkert taka af Fylkismönnunum, þeir voru góðir í dag. Það vorum ekki bara við sem vorum lélegir, það þarf oft tvennt til og þeir voru mjög góðir ,sérstaklega i fyrri hálfleik. Svo voru þeir bara búnir að vinna leikinn, þó að við höfum komið meira inn í seinni hálfleikinn var það kannski frekar bara þannig að þeir slökuðu aðeins á,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV að lokum við Fótbolti.net.



