Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. júlí 2009 22:23
Alexander Freyr Tamimi
Óli Þórðar: Hef aldrei verið í fótbolta til að vera í öðru sæti
Ólafur Þórðarson var sáttur með sína menn í kvöld.
Ólafur Þórðarson var sáttur með sína menn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég var mjög ánægður með fyrri hálfleikinn og við héldum markinu okkar hreinu. Það var mjög jákvætt líka. Við fylgdum fyrsta markinu vel eftir og keyrðum bara yfir þá. Við vorum í rauninni hálfgerðir klaufar í sjálfu sér að setja ekki á þá fleiri mörk en ég er alltaf sáttur við þrjú mörk á móti Eyjamönnum,“ sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis við Fótbolti.net eftir 3-0 sigur sinna manna gegn ÍBV í kvöld.

„Þetta var ekkert auðvelt en við höfðum þetta á mikilli keyrslu í fyrri hálfleik og þá klárum við þennan leik. Við slökuðum klárlega á í seinni hálfleik en engu að síður er ég mjög sáttur við það að fá ekki á okkur mark og skora þrjú. Auðvitað hefði ég viljað skora fleiri mörk, maður vill alltaf meira. Það er mikilvægt fyrir leikmenn að nýta svona tækifæri og það er alltaf gott fyrir sjálfstraustið að vinna stórt.“

Aðspurður segist Ólafur vera sáttur með gengi liðsins í deildinni, en Fylkir er í 2. sætinu með 20 stig. Hann segist þó vilja enn meira.

„Þetta er allavega ásættanlegt en auðvitað vill maður alltaf meira. Ég hef aldrei verið í fótbolta til að vera í öðru sæti,“ sagði Ólafur að lokum við Fótbolti.net.
Slapp
banner
banner