Aksentije Milisic skrifar frá Akureyri
KA 5 - 3 ÍR
1-0 David Disztl (´9)
1-1 Guðfinnur Þórir Ómarsson (´11)
1-2 Árni Freyr Guðnason (´13)
2-2 David Disztl (´48)
3-2 David Disztl (´60)
4-2 Andri Fannar Stefánsson (´80)
4-3 Haukur Ólafsson (´86)
5-3 Bjarni Pálmasson (´93)
Rautt spjald: Sandor Forizs ('90)
1-0 David Disztl (´9)
1-1 Guðfinnur Þórir Ómarsson (´11)
1-2 Árni Freyr Guðnason (´13)
2-2 David Disztl (´48)
3-2 David Disztl (´60)
4-2 Andri Fannar Stefánsson (´80)
4-3 Haukur Ólafsson (´86)
5-3 Bjarni Pálmasson (´93)
Rautt spjald: Sandor Forizs ('90)
KA menn fengu ÍR-inga í heimsókn í kvöld á Akureyrarvelli en leikurinn var mjög mikilvægur, sérstaklega fyrir KA menn sem náðu að komast í annað sætið með 5-3 sigri í stórskemmtilegum leik á Akureyri,
Leikurinn var fjörugur allt frá fyrstu mínútu og til þeirrar síðustu. Eftir aðeins eins mínútna leik fékk Arnar Már Guðjónsson fyrirliði KA dauðafæri. Andri Fannar Stefánsson og Haukar Heiðar Hauksson léku þá vel á milli sin og Haukur kom með flotta fyrirgjöfn þvert í gegnum teiginn beint á Arnar Már sem stóð á fjærstöng einn og óvaldaður en hann skaut boltanum yfir. KA menn héldur áfram að sækja. Á 9.mínútu fengu þeir innkast sem þeir tóku snöggt, spiluðum sig í gegnum vörn ÍR-inga og David Disztl komst í gott færi og kláraði það vel framhjá Þorsteini Einarssyni markmanni ÍR.
En ÍR-ingar voru ekki lengi að koma sér inn í leikinn. Á 11 mínútu fékk Árni Freyr Guðnason boltan á vallarhelmingi KA, gaf flotta stungusendingu á Guðfinn Þóri Ómarsson sem stakk varnarmenn KA af og átti ekki í vandræðum með að setja boltann framhjá Sandor Matus í markinu og jafnaði leikinn. Aðeins tveimur mínútum eftir jöfnunarmark ÍR komust þeir yfir. Erlingur Jack Guðmundsson gaf háan bolta á Árna Freyr sem lagði boltan fyrir sig og hamraði honum neðst í markhornið, óverjandi fyrir Sandor og ÍR-ingar ekki lengi að svara fyrir sig.
Eftir þetta sóttu KA menn töluvert og fékk David Disztl dauðafæri. Arnar Már átti þá frábæra sendingu upp kantinn á Dean Martin sem náði góðri sendingu fyrir markið og nærstöng þar sem Disztl kom á ferðinni en á einhvern ótrúlegan hátt mokaði hann boltanum yfir markið og ÍR stál heppnir.
Á 29.mínútu fengu ÍR-ingar vítarspyrnu. Það kom sending fyrir markið og Norbert Farkas virtist toga örlítið í Kristján Ara Halldórsson sem átti engann möguleika að ná boltanum en Hans Scheving var ekki lengi að ákveða sig og dæmdi vítarspyrnu við mikil mótmæli heimamanna. Erlingur Jack fór á punktinn en Sandor gerði sér lítið fyrir og greip boltann, ekki í fyrsta sinn sem hann ver víti og líklega ekki í það síðasta.
Eftir þetta sóttu KA menn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og fékk Andri Fannar á meðal annars fínt færi eftir flott spil þar sem ÍR-ingar björguðu á elleftu stundu.
Seinni hálfleikur var frábær skemmtun eins og sá fyrri. KA voru ekki lengi að jafna metin en á 48.mínútu átti Sandro Forizs sem kom inná sem varamaður í hálfleik, flotta sendingu upp kantinn á Dean sem náði góðri fyrirgjöf beint á kollinn á David Disztl sem skallaði boltann frábærlega í fjærhornið og KA búnir að jafna. ÍR reyndu að svara fyrir sig og á 56.mínútu komst Guðfinnur einn gegn Sandor eftir sendingu frá Árna en í þetta skiptið sá Sandor við honum.
KA menn sóttu og á 60.mínútu uppskáru þeir hornspyrnu. Dean tók spyrnuna stutt á Arnar Már, fékk boltann aftur og gaf hann fyrir mark og þar var mættur David Disztl sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði sitt þriðja mark og kom KA mönnum yfir við mikil fögnuð heimamanna. Á 68.mínútu átti svo Guðmundur Óli flottan sprett og skot rétt framhjá stönginni.
Fjörið hélt áfram og tíu mínútum fyrir leikslok átti enn og aftur Dean sendingu og nú á Andra Fannar sem slapp einn í gegn og náði með harðfylgni að að komast framhjá Þorsteini í marki ÍR og leggja boltann í netið og koma KA mönnum í 4-2 og leikurinn var alls ekki búinn.
Á 86.mínútu fengu ÍR-inga aftur dæmda vítarspyrnu eftir að Sandor Forizs braut á sér og uppskar gult spjald. Á punktinn fór Haukur Ólafsson og skoraði af miklu öryggi upp í markhornið og gaf ÍR von.
Á 90.mínútu fékk svo Sandor Forizs sitt annað gula spjald og þar með rautt og KA menn einum færri síðustu mínúturnar en KA bættu bara við marki og þar var að verki Bjarni Pálmason með fallegt mark, hann fékk boltann og tók hann á ferðinni yfir Þorstein í markinu og gulltryggði sigur KA sem eru komnir í annað sæti tímabundið allavega en ÍR sitja sem fyrr í því áttunda.



