Fylkir 3 - 0 ÍBV
1-0 Halldór Arnar Hilmisson ('3)
2-0 Kjartan Ágúst Breiðdal ('21)
3-0 Albert Brynjar Ingason ('33)
1-0 Halldór Arnar Hilmisson ('3)
2-0 Kjartan Ágúst Breiðdal ('21)
3-0 Albert Brynjar Ingason ('33)
Það var ekki mikill efstu deildarbragur á liði ÍBV þegar þeir sóttu Fylki heim í Árbæinn í 10. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Eyjamenn eyðilögðu algerlega fyrir sjálfum sér með skelfilegum fyrri hálfleik og bar Árbæjarliðið sanngjarnan 3-0 sigur úr bítum sem hefði vel getað verið stærri.
Það sást strax í hvað stefndi í þessum leik því strax á 3. mínútu leiksins kom Halldór Arnar Hilmisson Fylki yfir eftir að varnarmenn ÍBV sofnuðu á verðinum. Gestirnir virtust hafa verið slegnir örlítið út af laginu eftir þetta mark því það gekk hvorki né rak hjá þeim næstu mínúturnar.
Það kom engum á óvart þegar Fylkir skoraði sitt annað mark eftir rúmlega 20 mínútna leik en þar var á ferð Kjartan Ágúst Breiðdal. Ingimundur Níels Óskarsson hafði þá átt skot sem Albert Sævarsson í marki ÍBV varði vel en sem fyrr var vörn ÍBV annars hugar og gat Kjartan því auðveldlega hirt frákastið og bætt við marki.
Sem fyrr var ekki mikið í gangi hjá Eyjamönnum og var spilamennska þeirra arfaslök með meiru. Þeim var síðan refsað fyrir það á 33. mínútu þegar Fylkir bætti við sínu þriðja marki eftir flotta skyndisókn. Andrés Jóhannesson geystist þá upp hægri kantinn og náði góðri fyrirgjöf sem Albert Brynjar Ingason hamraði í netið í fyrstu snertingu.
Á þessum tímapunkti benti allt til þess að ÍBV liðið yrði gersamlega kjöldregið í Árbænum og í eina ágætis færinu sem þeir fengu í leiknum fór boltinn í stöngina. Þeim tókst þó að koma í veg fyrir frekari niðurlægingu áður en flautað var til leikhlés og voru þeir sjálfsagt dauðfegnir að komast inn í búningsklefana.
Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki á jafn fjörugan hátt og sá fyrri og var augljóst að aðeins hafði slaknað á klónni hjá heimamönnum. Gestirnir komust þannig aðeins meira inn í leikinn en það var hálf grátlegt að sjá hvernig þeir nýttu sér það. Sendingar þeirra misheppnuðust flestar og aukaspyrnur á hættulegum stöðum fóru algerlega forgörðum.
Færin virtust vera hætt að láta sjá sig ef frá voru talin tvö hálffæri hjá Fylkismönnum. Eyjamenn tóku þó aðeins við sér þegar um það bil tíu mínútur voru eftir en það var deginum ljósara að þeir voru ekki að fara að skora þrjú mörk á þeim tíma.
Elías Ingi Árnason fékk mögulega besta færi gestanna þegar hann var í góðu skotfæri eftir fyrirgjöf frá Inga Rafni Ingibergssyni en heppnin var ekki með Elíasi frekar en öðrum Eyjamönnum og fór boltinn naumlega framhjá.
Skömmu síðar átti Viðar Örn Kjartansson gott skot utan teigs eftir lélega hreinsun frá Ólafi Stígssyni en það fór rétt yfir markið.
Staðan var enn 3-0 fyrir Fylki þegar Jóhannes Valgeirsson dómari batt enda á arfaslakan síðari hálfleik og uppskáru Fylkismenn því þrjú fyllilega verðskulduð stig og markatölu sem dugði til að skjóta þeim í 2. sæti deildarinnar.
Eyjamenn eru aftur á móti enn með einungis sex stig, en eru þó ekki í fallsæti. Það er þó deginum ljósara að leiðin liggur einungis niður ef liðin ætlar að spila á þennan máta það sem eftir er tímabilsins og þurfa þeir virkilega að bretta upp ermarnar ef þeir ætla að halda lífi í deild hinna bestu.
Byrjunarlið Fylkis: Fjalar Þorgeirsson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Ólafur Ingi Stígsson, Ingimundur Níels Óskarsson (74. Kjartan Andri Baldvinsson), Andrés Már Jóhannesson, Kjartan Ágúst Breiðdal, Albert Brynjar Ingason (64. Jóhann Þórhallsson), Tómas Þorsteinsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Halldór Arnar Hilmisson (59. Theodór Óskarsson).
Byrjunarlið ÍBV: Albert Sævarsson, Christopher Clements, Matt Nicholas Paul Garner, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Andri Ólafsson, Yngvi Magnús Borgþórsson (44. Arnór Eyvar Ólafsson), Pétur Runólfsson (68. Elías Ingi Árnason), Viðar Örn Kjartansson, Tony Mawejje, Bjarni Rúnar Einarsson (72. Ingi Rafn Ingibergsson), Ajay Leitch-Smith.
Gul spjöld: Halldór Arnar Hilmisson (Fylki), Tómas Joð Þorsteinsson (Fylki),
Maður leiksins: Kjartan Ágúst Breiðdal, Fylki.
Dómari: Jóhannes Valgeirsson.
Áhorfendur: 936



