Heimild: Sky
Inter hefur fengið miðjumanninn Thiago Motta til liðs við sig frá Genoa.
Motta, sem er 26 ára, hefur skrifað undir fjöggura ára samning við Ítalíumeistarana.
Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Inter frá Genoa í þessari viku en áður hafði Diego Milito farið sömu leið.
Motta lék áður með Barcelona og Atletico Madrid þar sem hann varð fyrir meiðslum sem ógnuðu ferli hans en á síðustu leiktíð hjálpaði hann Genoa að enda í fimmta sætinu í Serie A.



