Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Roque Santa Cruz setur stefnuna á topp fjögur með City
Roque Santa Cruz, nýjasti leikmaður Manchester City, telur að félagið eigi að ná að enda í einu af efstu fjórum sætunum í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

City var 22 stigum frá fjórða sætinu á síðustu leiktíð en í sumar hafa Santa Cruz og Gareth Barry bæst í leikmannahópinn auk þess sem að fleiri leikmenn eru líklega á leiðinni.

,,Topp fjögur er markmiðið. Að segjast vilja vinna eins marga leiki og hægt er mun ekki vera nóg," sagði Santa Cruz.

,,Að vinna titla er mjög erfitt verkefni. Það gerist ekki á einum degi og það mun kosta mikla vinnu."

,,Allir hafa sín eigin markmið en það er mikilvægt að allir hugsi á sama hátt og stefni í sömu átt."

Slapp
banner