Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 07:04
Magnús Már Einarsson
Benzema óskaði eftir að fá að fara til Real Madrid
Fátt getur komið í veg fyrir að Karim Benzema, framherji Lyon, gangi í raðir Real Madrid á næstu dögum en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð upp á 30 milljónir punda eins og greint var frá í gær.

Benzema hefur verið orðaður við Real Madrid og Manchester United í sumar en hann óskaði sjálfur eftir að fá að fara til Real og fylgja þannig í fótspor Cristiano Ronaldo og Kaka.

,,Fyrir nokkrum dögum sagði Karim Benzema við Jean Michel Aulas, forseta félagsins, að hann vildi fara til Madrid. Það hefur alltaf verið uppáhalds félag hans á eftir Lyon," sagði í yfirlýsingu frá Lyon í gær.

,,Leikmaðurinn vildi nýta tækifærið sem Real Madrid bauð honum en það er að vera í einu af aðalhlutverkunum í metnaðarfullu verkefni sem byggt er á bestu leikmönnum heims."

,,Lyon samþykkti ákvörðun Karim Benzema og samningaviðræðurnar gengu vel hjá öllum aðilum. Félagið óskar Karim velgengni með Real Madrid."

Slapp
banner
banner