Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: UEFA 
Juanito til Atletico Madrid (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Atletico Madrid hefur fengið varnarmanninn Juanito til liðs við sig frá Real Betis.

Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir tveggja ára saming við félagið.

Juanito, sem er fyrrum fyrirliði Betis, lék alls 255 leiki á ferli sínum með félaginu.

Betis féll á dögunum úr spænsku úrvalsdeildinni og þegar að Juanito varð samningslaus núna um mánaðarmótin ákvað hann að söðla um og ganga í raðir Atletico Madrid.

Juanito var í leikmannahópi Spánverja á EM í fyrra en hann á alls 26 landsleiki að baki.
Slapp
banner
banner
banner
banner