Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 07:21
Hafliði Breiðfjörð
Ekki útilokað að Edda og Ólína spili út tímabilið hjá Örebro
Kvenaboltinn
Ólína og Edda í búningi KIF Örebro.
Ólína og Edda í búningi KIF Örebro.
Mynd: Guðmundur Svansson
Enn er ekki útilokað að Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir spili með KIF Örebro út tímabilið í sænsku deildinni en við sögðum frá því í gær að vegna skattamála yrðu þær hjá félaginu aðeins út júlí.

Edda sagði við Fótbolta.net í gærkvöld að hún vonaðist til að samningar náist við félagið og þær leiki áfram með félaginu en þær þurfi að skoða margt í Svíþjóð og hér heima áður en framtíðin verður ákveðin.

Frétt okkar í gær byggðist á frétt á sænska kvennafótboltavefnum Damfotboll.com en síðar um daginn birtist þar önnur frétt þar sem Thomas Rasmusson framkvæmdastjóri KIF Örebro sagði fyrri fréttina byggða á misskilningi og að hann vonaðist til að félaginu takist að halda Eddu og Ólínu út tímabilið.
Slapp
banner
banner