Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 11:08
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Goal.com 
Real Madrid þarf að selja 6,7 milljónir treyja fyrir Kaka
Fjármálastjóri Barcelona segir að Real Madrid þurfi að selja 6,7 milljónir treyja til að greiða upp kaupverðið á Brasilíumanninum Kaka sem er genginn til liðs við félagið.

Florentino Perez forseti Real Madrid hafði sagt að Kaka myndi skapa auknar tekjur fyrir félagið en Xavier Sala i Martin fjármálastjóri Barcelona segir að hann geti ekki séð hvernig hægt verði fyrir félagið að fá kaupverðið til baka.

Kaka kostaði 67 milljónir evra þegar Real Madrid keypti hann frá AC Milan en hann var kynntur fyrir stuðningsmönnum spænska félagsins á þriðjudag.

Joan Laporta forseti Barcelona hefur áður gagnrýnt kaupin og sagt sitt félag ekki þurfa að eyða slíkum upphæðum enda skapi þeir sýnar eigin stjörnur. Sala i Martin heldur gagnrýninni nú áfram.

,,Til að geta greitt fyrir Kaka, verða þeir að selja 6,7 milljónir treyja," var haft eftir honum í Sport.

Þess má annars geta að hér á Fótbolta.net er nú hægt að bjóða í keppnistreyju Kaka með AC Milan sem hann lét Emil Hallfreðsson hafa eftir leik liðsins gegn Reggina í haust. Á forsíðu Fótbolta.net er borði sem vísar á hæsta boð og tengill á honum um hvernig er hægt að bjóða.
Slapp