Heimild: AFP
Hollendingurinn Dick Advocaat hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Belgíu en Belgar staðfestu í gærkvöld að hann hafi skrifað undir tveggja ára samning um að þjálfa lið þeirra.
Advocaat er 61 árs gamall og hefur tvívegis þjálfað hollenska landsliðið. Hann tekur við belgíska landsliðinu 1. janúar næstkomandi þar sem hann er enn samningsbundinn Zenit St-Petersburg sem hann gerði að sigurvegurum í UEFA Cup og ofurbikar Evrópu.
Hann er fyrrverandi þjálfari skoska stórliðsins Rangers og hefur líka gert góða hluti með Suður Kóreu og Borussia Mönchengladbach. Hann tekur við belgíska landsliðinu af Rene Vandereycken sem var rekinn í apríl eftir þrjú ár í starfi.
Belgar eru í fjórða sæti fimmta riðils undankeppni HM 2010 og eiga litla möguleika á að komast til Suður Afríku næsta sumar. Þeir komust ekki heldur á EM 2008.



