Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Bein textalýsing frá leik Keflavíkur á Möltu í dag
Frábærir stuðningsmenn Keflavíkur verða ekki á Möltu í dag en geta fylgst með í textalýsingu á Fótbolta.net.
Frábærir stuðningsmenn Keflavíkur verða ekki á Möltu í dag en geta fylgst með í textalýsingu á Fótbolta.net.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík mætir liði Valetta frá Möltu í Evrópudeild UEFA klukkan 15:30 í dag og lesendur Fótbolta.net geta fylgst með leiknum í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net á meðan honum stendur.

Leikið er á gervigrasi á Möltu í miklum hita en ljóst að Keflavík verður að ná góðum úrslitum fyrir seinni leik liðanna sem fer fram hér á landi.

Leikurinn hefst sem fyrr segir klukkan 15:30 og um hálfri klukkustund fyrr byrjum við að færa inn nýjustu tíðindin frá Möltu, byrjunarlið Keflvíkinga og svo framvegis.

Í kvöld mætir Fram svo liði TNS í sömu keppni auk þess sem þrír leikir fara fram í Pepsi-deild karla. Öllum þeim leikjum verður einnig lýst í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner