Heimild: AFP
Giovanni Cobolli Gigli forseti Juventus útilokaði í gær að félagið muni reyna að fá Xabi Alonso miðjumann Liverpool til liðs við sig í sumar. Alonso sem er 27 ára gamall Spánverji hefur verið orðaður við Real Madrid að undanförnu.
,,Við erum að skoða nokkur nöfn á miðjuna en Xabi Alonso er ekki eitt þeirra," sagði Cobolli við fréttamenn um málið.
,,Ég frétti af því að við hefðum áhuga á Spánverjanum í fjölmiðlum. Hann er frábær leikmaður en miðað við það að ég hafi lesið um nafn hans í blöðunum þá ætti það að segja ykkur allt."
Cobolli sagði heldur ekkert til í því að félagið vildi fá slóvakska miðjumanninn Marek Hamsik en viðurkenndi áhuga á Gaetano D'Agostino leikmanni Udinese.




