Hið árlega N1-mót KA hófst í gærdag á KA-svæðinu en þar etja kappi strákar í fimmta flokki karla. Á mótið nú í ár eru 144 lið skráð til leiks frá 34 félögum vítt og breitt um landið og einnig er færeyska liðið B36 að taka þátt.
Um 1500 strákar eru í þessum liðum og áætlar mótsstjórn að allt að 7000 manns komi í bæinn í tengslum við mótið en strax klukkan þrjú í gærdag þegar flautað var til leiks var gífurlegur fjöldi fólks mættur á KA-svæðið en það var sól og blíða á Akureyri í gær.
Mótinu lýkur á laugardagskvöld með glæsilegu lokahófi en fram að því munu strákarnir leika fjöldan allan af leikjum og nóg af tilþrifum eiga eftir að líta dagsins ljós.
Allar frekari upplýsingar á borð við úrslit, lifandi fréttir af svæðinu ásamt aragrúa af myndum og svo VefTv KA er að finna á vefsíðu N1-mótsins, www.ka-sport.is/n1motid



