Fjórir leikir voru á dagskrá í 1. deild kvenna í gær og í fyrradag. Höttur náði í sín fyrstu stig í sumar með 2-0 sigri á Fjarðabyggð/Leikni fyrir framan 100 áhorfendur á Vilhjálmsvelli í kvöld en í gær hafði ÍBV unnið enn einn sigurinn í sumar, í þetta sinn gegn liði ÍA. Í kvöld mættu Haukar svo Tindastól/Neista og burstuðu þær með 8 mörkum gegn einu.
Þróttarar tóku á móti Sindra á Valbjarnarvelli í kvöld. Þróttur hóf leikinn af miklum krafti og Rúna Sif Rafnsdóttir kom þeim röndóttu yfir strax á annarri mínútu leiksins.
Þróttarar fylgdu góðri byrjun þó ekki eftir og jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleiknum sem einkenndist af mikilli baráttu. Bæði lið fengu ágæt færi en voru þó sjaldan líkleg til að skora. Upphafsmínútur síðari hálfleiks voru í sama dúr en Þróttarar hertu tök sín á leiknum eftir því sem leið á leikinn.
Soffía Ummarin Kristinsdóttir bætti við öðru marki Þróttar um miðjan hálfleikinn og í kjölfarið fylgdu þrjú mörk frá markahróknum Margréti Maríu Hólmarsdóttur sem nú hefur skorað 11 mörk í 6 leikjum fyrir Þrótt. Lokatölur 5-0 fyrir Þrótt.

Höttur 2-0 Fjarðabyggð/Leiknir
1-0 Elísabet Sara Emilsdóttir ('70)
2-0 Fanney Þórunn Kristinsdóttir ('83)
ÍA 1-2 ÍBV
(Markaskorara vantar)
Þróttur 5-0 Sindri
1-0 Rúna Sif Rafnsgdóttir ('2)
2-0 Soffía Ummarin Kristinsdóttir
3-0 Margrét María Hólmarsdóttir
4-0 Margrét María Hólmarsdóttir
5-0 Margrét María Hólmarsdóttir
Haukar 8-1 Tindastóll/Neisti
1-0 Margrét Sif Magnúsdóttir
2-0 Björg Magnea Ólafs
3-0 Margrét Sif Magnúsdóttir
4-0 Ashley Gunther
5-0 Lovísa Einarsdóttir
6-0 Margrét Sif Magnúsdóttir
7-0 Þórdís Pétursdóttir
8-0 Björg Magnea Ólafs
8-1 Hrafnhildur S. Kristjánsdóttir