Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 20:47
Brynjar Ingi Erluson
BEINT: Fram 2-1 TNS (Leik lokið)
Fram er að leika í fyrsta sinn í Evrópukeppni síðan 1992
Fram er að leika í fyrsta sinn í Evrópukeppni síðan 1992
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Fram 2-1 The New Saints F.C
0-1 Steve Evans ('24)
1-1 Samuel Lee Tillen ('33)
2-1 Heiðar Geir Júlíusson ('48)

Leik lokið: Dómarinn flautar leikinn af og fer Fram með 2-1 sigur af hólmi í Laugardalnum, en það er ágætt veganesti í seinni leikinn sem fer fram í Wales í næstu viku.

87. mínúta: Framarar gera skiptingu og það er Hlynur Atli Magnússon sem kemur inn á í sínum fyrsta leik fyrir félagið og það í Evrópudeildinni, en útaf kemur Ingvar Þór Ólason.

85. mínúta: Joe Tillen fær boltann á vinstri kantinn og tekur skotið, en það er himinhátt yfir markið.

82. mínúta: Hjálmar Þórarinsson kemst í dauðafæri er hann hleypur upp vinstri kantinn, en Harrison vel ver frá honum. TNS gerir þá skiptingu, Christopher Marriott kemur inn á og útaf í hans stað kemur Daniel Holmes.

80. mínúta: Halldór Hermann kemst í dauðafær eftir laglegt spil Framara, en hann bara getur ekki skorað. Hann hefur ekki enn skorað fyrir Fram, líklega ekki á æfingu heldur.

79. mínúta: Ingvar Þór Ólason með innanfótarskot framhjá markinu, en það er hornspyrna þar sem boltinn hafði viðkomu við varnarmann TNS.

73. mínúta: Conall Murtagh kemur útaf í liði TNS og inn kemur Alex Darlington.

70. mínúta: Ívar Björnsson og Joseph Tillen koma inn á og útaf koma þeir Almarr Ormarsson og Heiðar Geir Júlíusson.

66. mínúta: Scott Ruscoe með skot, en Hannes ver hann örugglega og lítil hætta hér á ferð.

63. mínúta: Halldór Hermann þrumar boltanum að marki, en Paul Harrison ver hann vel.

58. mínúta: Lítið markvert að gerast, en Framarar eru þó töluvert sterkari í dag og verjast vel, en velska liðið er þó líka að sýna lipra takta í kvöld.

MAAAAAAAAARRRK! Heiðar Geir Júlíusson er búinn að koma Fram yfir í leiknum, en boltinn kom af vinstri kantnum og rann í gegnum vörn TNS, þar var Heiðar mættur í dauðafæri og kláraði það frábærlega.

46. mínúta: Síðari hálfleikur er hafinn og þurfa Framarar að bæta við sig mörkum til þess að sigla í gegnum 1. umferð og byrjar Hjálmar á góðu skoti, en Paul ver boltann vel.

Hálfleikur: Dómarinn hefur flautað til hálfleiks hér í Laugardalnum er staðan er 1-1 jafntefli.

43. mínúta: Framarar sækja af krafti undir lok fyrri hálfleik, en þeir hafa komið sterkir inn í leikinn eftir jöfnunarmarkið.

35. mínúta: Scott Ruscoe er einn fyrir utan vítateig og enginn pressar á hann sem gefur honum frítt skot, en Hannes Þór ver það vel í markinu.

MAAAAAAAAAAAAAAAAARK! Sam Tillen skorar örugglega út vítaspyrnunni í hægra hornið og Paul Harrison kemur engum vörnum við, 1-1 og vonandi áframhaldandi spenna í Laugardalnum.

32. mínúta: Dómarinn er búinn að dæma vítaspyrnu á TNS, en varnarmaður þeirra braut á Paul McShane, og það er Sam Tillen sem stígur á punktinn

28. mínúta: Halldór Hermann sendir fyrirgjöf inn í teig, en Steve Evans kemur í veg fyrir það með hendinni, en ekkert dæmt.

MAAAAAAAAAARK! Steve Evans er að koma TNS yfir eftir sendingu frá Scott Ruscoe. Það kemur fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Evans lúrði og skallaði hann yfir línuna, en umdeilt var hvort boltinn væri inni þar sem heimamenn náðu að hreinsa boltanum burt, en markið er gilt!

19. mínúta: Berkeley fær gult spjald fyrir fáránlega tæklingu á Paul McShane, sólinn á undan með báðar fætur.

17. mínúta: Lítið markvert að gerast í Laugardalnum, en bæði lið eru að spila þétta vörn og leika boltanum milli sín án þess að sækja neitt hættulega fram á völlinn.

9. mínúta: Fram fær hornspyrnu sem fer á nær og munar ekki litlu að heimaliðið komist yfir, en boltinn hafnar af varnarmanni í stöngina, en varnarmenn TNS ná að hreinsa frá.

Framarar láta sér ekki segjast og hækka róminn, svakaleg stemmning í Laugardalnum og má búast við hörkuleik.

7. mínúta: Berkeley skorar! Dómarinn var búinn að dæma brot og því ógilt mark, en það heyrist vel í stuðningsmönnum TNS þessa stundina.

4. mínúta: Matthew Berkeley, framherji TNS fær gott marktækifæri er fyrirgjöf kom inn fyrir, en skall hans fer yfir markið.

19:00: Leikurinn er hafinn.

Byrjunarlið TNS: Paul Harrison (M), Barry Hogan, Thomas Holmes, Steve Evans(F), Phillip Baker, Scott Ruscoe, Matthew Berkeley, Jamie Wood, Craig Steven Jones, Conall Murtagh og Daniel Holmes.

Á bekknum eru þeir Cristopher Marriott, Alex Darlington, Craig Williams, Christian Sergeant, John McKenna, Aeron Edwards og Lee Williams.

Byrjunarlið Fram: Hannes Þór Halldórsson, Paul McShane, Ingvar Þór Ólason, Kristján Hauksson (F), Halldór Hermann Jónsson, Daði Guðmundsson, Heiðar Geir Júlíusson, Samuel Lee Tillen, Hjálmar Þórarinsson, Almarr Ormarsson, Jón Guðni Fjóluson.

Á bekknum eru þeir Hlynur Atli Magnússon, Grímur Björn Grímsson, Alexander Veigar Þórarinsson, Ívar Björnsson, Jón Orri Ólafsson, Joseph Edward Tillen, Ögmundur Kristinsson.

18:49: Luc Wouters dæmir leikinn í kvöld, en hann er frá Belgíu og var meðal annars fjórði dómari í leik Liverpool og Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í vetur.

18:47: Það er rúmlega korter í leik, en liðin eru komin inn í klefa að ræða málin fyrir komandi átök.

Velkomin í beina textalýsingu okkar frá leik Fram og The New Saints frá Wales í Evrópudeild UEFA eins og keppnin nefnist núna, en hún hét áður UEFA Cup.

Liðin eru að leika í 1. umferð í undankeppni Evrópudeildarinnar, en liðið sem hefur betur í þessari rimmu mætir Sigma Olomouc frá Tékklandi, en síðari leikur liðanna í dag fer fram í Wales eftir nákvæmlega viku.

Fram hefur ekki leikið í Evrópukeppni síðan 1992 þegar liðið féll úr leik fyrir Kaiserslautern frá Þýskalandi, en líklega stærsti Evrópuleikur fram var gegn Real Madrid árið 1974, er Framarar töpuðu 2-0 á Laugardalsvelli og svo 5-0 á Santiago Bernabeu.

The New Saints, eða Total Network Solutions eins og það var kallað hér fyrir nokkrum árum er tiltölulega nýtt lið og var stofnað árið 2003 og því ekki mikil saga á bakvið það, en það muna líklega flestir eftir liðinu er það mætti Evrópumeisturum Liverpool árið 2005.

Liverpool þurfti að spila í 1. umferð undankeppni Meistaradeildarinar vegna þess að félagið lenti í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Fyrri leikurinn var á Anfield Road og endaði hann 3-0 Liverpool í vil er Steven Gerrard skoraði sína fyrstu þrennu fyrir félagið.

Liverpool kláraði svo dæmið í Wales með sömu markatölu þar sem Gerrard skoraði tvennu ásamt því að Djibril Cissé skoraði eitt, en þrátt fyrir það var hrósað frammistöðu hjá markverði TNS, Gerard Doherty sem varði vel í leikjunum, en hann leikur ekki lengur með liðinu.

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram stýrir liðinu í kvöld eftir að hafa verið á UEFA námskeiði erlendis, en Jón Sveinsson, aðstoðarþjálfari liðsins stýrði liðinu í fjarveru hans.
Slapp
banner
banner
banner