Heimild: Reuters
Franck Ribery segir að hann vilji yfirgefa Bayern Munchen og ganga til liðs við Real Madrid en franska íþróttadagblaðið L'Equipe hafði þetta eftir honum í morgun.
Karim Benzema landi Ribery er þegar genginn í raðir Real Madrid frá Lyon og er þriðju stóru kaup félagsins á eftir Kaka og Cristiano ronaldo.
,,Ég hef tekið ákvörðun, ég vil fara," sagði Ribery við L'Equipe í dag. ,,Það verður Real eða ekkert."
Forráðamenn Bayern hafa sagt að Ribery sem kom til þeirra árið 2007 frá Marseille sé ekki til sölu.



