Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka dagsins í boði Powerade en þar er búið að taka saman helstu slúðurfréttirnar úr ensku götublöðunum.
Carlo Ancelotti nýr stjóri Chelsea seinkaði komu sinni til London því hann vill reyna að telja Alexandre Pato á að fylgja sér frá AC Milan. (The Sun)
Barcelona er að setja saman 25 milljón punda tilboð í argentíska miðjumanninn Javier Mascherano hjá Liverpool. (Daily Mirror)
Svo virðist sem ekkert verði af því að Ricardo Carvalo og Deco fari til Inter frá Chelsea því enska félagið vill fá 12 milljónir punda fyrir þá. (Daily Telegraph)
Carlos Tevez verður kynntur sem nýr leikmaður Manchester City á mánudaginn í næstu viku eftir að hafa samþykkt launapakka upp á 120 þúsund pund í vikulaun. (Daily Mirror)
Patrick Vieira fyrrverandi fyrirliða Arsenal hafa verið boðin 100 þúsund pund í vikulaun fari hann til Birmingham frá Inter Milan. (The Sun)
Chelsea er að nálgast Andrea Pirlo miðjumann AC Milan. (Daily Express)
Chelsea neitar að gefast upp í baráttu um að næla í Franck Ribery. (Daily Mail)
Mark Hughes stjóri Manchester City virðist ætla að hætta við Joleon Lescott varnarmann Everton því honum finnst 20 milljón punda kaupverð 5 milljónum of hátt. (Daily Star)
Clint Dempsey miðjumaður Fulham gæti verið á leið til Everton á 4 milljónir punda en hann hafnaði nýjum samningi hjá Fulham. (The Sun)
Roberto Martinez nýr stjóri Wigan er að fara að klára samning við Hendry Thomas frá Honduras því Sunderland vill hann líka. (Daily Mirror)
Aston Villa er tilbúið að leggja fram tilboð upp á 3,5 milljónir punda og Barry Bannan í stað Titus Bramble varnarmanns Wigan. (Daily Star)
Martin O'Neill stjóri Aston Villa er að skoða þann möguleika að fá Stewart Downing leikmann Middlesbrough þó hann sé frá fram í október vegna meiðsla á fæti. (Daily Mail)
Steve Bruce stjóri Sunderland ætlar að bjóða í Stephen Hunt hjá Reading og vill líka Humberto Suazo framherja frá Chile. (The Sun)
Sam Allardyce stjóri Blackburn mun ekki bjóða í Joey Barton hjá Newcastle. (Daily Star)
Birmingham vill fá vinstri bakvörðinn Armand Traore á láni frá Arsenal út tímabilið. (The Sun)
William Gallas varnarmaður Arsenal segir að hann muni ekki gera nýjan samning við félagið og fari því frítt ef hann fær ekki að fara þetta sumarið frá félaginu. Inter Milan vill hann. (Daily Mirror)
Ashley Cole bakvörður Chelsea er að gera nýjan fjögurra ára samning við félagið og mun fá 120 þúsund pund í vikulaun. (Times)

