Heimild: BBC
Wigan Athletic hefur fengið miðjumanninn Henry Thomas til liðs við sig frá Deportivo Olimpia.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kemur frá Hondúras en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning.
Hann var nálægt því að ganga í raðir Wigan í fyrra en þá fékkst ekki atvinnuleyfi fyrfir leikmanninn.
Atvinnuleyfið er hins vegar klárt núna og Thomas er búinn að semja og standast læknisskoðun.
,,Það sem gerðist á síðustu leiktíð var synd en leikmaðurinn á núna möguleika á að sanna sig hér," sagði Roberto Martineze stjóri WIgan.





