Magni Fannberg Magnússon mun í næsta mánuði halda til starfa hjá IF Brommapojkarna í Svíþjóð.
Magni mun starfa í sérstakri framhaldsskólaakademíu félagsins en yfirmaðurinn þar er fyrrum unglingaþjálfari hjá Malmö þar sem hann þjálfaði Zlatan Ibrahimovic og fleiri leikmenn.
Síðastliðið sumar hætti Magni sem þjálfari Fjarðabyggðar en áður þjálfaði hann meðal annars hjá Val, Grindavík og HK.
Magni mun halda til Svíþjóðar í byrjun ágúst en tækifærið til að starfa hjá Brommapojkarna kom í gegnum umboðsmanninn Guðlaug Tómasson.

