Heimild: Heimasíða Leiknis
Halldór Kristinn Halldórsson, fyrirliði Leiknis, hefur gert nýjan samning við félagið sem gildir út leiktímabilið 2011.
Halldór hefur staðið sig vel í vörn Leiknis á tímabilinu og verið besti leikmaður liðsins hingað til.
,,Það er mikið gleðiefni að Dóri hafi skrifað undir nýjan samning enda leikið feykilega vel á tímabilinu og ljóst að úrvalsdeildarlið horfa hýru auga til hans," segir á heimasíðu Leiknis.
Halldór er 21 árs en hann hóf að leika með meistaraflokki Leiknis árið 2003.
Hann hefur alla sína tíð leikið með Leikni fyrir utan nokkra mánuði í fyrra þegar hann var í röðum FH.



