Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 12:05
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Dagens Nyheter 
Ragnar í úrvalsliði Dagens Nyheter
Ragnar í baráttunni í sænsku úrvalsdeildinni
Ragnar í baráttunni í sænsku úrvalsdeildinni
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Ragnar Sigurðsson, varnarmaður IFK Gautaborgar, er í úrvalsliði Dagens Nyheter sem samanstendur af leikmönnum sem hafa þótt standa sig best í fyrstu 12 umferðum sænsku úrvalsdeildarinnar.

Ragnar er að margra mati besti miðvörður deildarinnar og er hann undir smásjá margra liða á meginlandi Evrópu. Hann hefur spilað gríðarlega vel það sem af er keppnistímabilinu en hann þótti leika undir getu á síðasta ári eftir frábært tímabil þar á undan.

Úrvalslið Dagens Nyheter í leikskipulaginu 4-3-3:

Markvörður:
John Alvbåge, Örebro

Varnarmenn:
Tobias Carlsson, Kalmar
Ragnar Sigurðsson, Göteborg
Michael Almebäck, Örebro
Mathias Florén, Elfsborg

Miðjumenn:
Yussif Chibsah, Gefle.
Pontus Wernbloom, Göteborg
Philip Haglund, BP

Framherjar:
Iván Óbolo, AIK
Wanderson do Carmo, Gais
Tobias Hysén, Göteborg
Slapp
banner
banner