Heimild: BBC
Landon Donovan, fyrirliði landsliðs Bandaríkjanna og liðsfélagi David Beckham hjá LA Galaxy, hefur skotið föstum skotum að þeim síðarnefnda og segir hann hafa brugðist liði sínu með því að hafa farið á láni til AC Milan.
Þetta kemur fram í nýútkominni bók sem ber nafnið The Beckham Experiment og fjallar um veru David Beckham í Bandaríkjunum.
,,Það eina sem skiptir okkur málier að hann er samningsbundinn okkur. Eftir því sem á hefur liðið þá virðist það yfirleitt ekki vera svo, hvorki inn á vellinum né utan hans," segir Donovan og bætir um betur.
,,Ætli það breyti einhverju hversu hátt launaður hann er? Auðvitað! Það skiptir öllu máli."
,,Ef að þú er launahæsti leikmaðurinn í deildinni og er meira að segja með tvöfalt hærri laun er sá næstlaunahæsti, þá er lágmark að þú mætir á hvern einasta leik liðsins, sama þótt þú sért meiddur eða í leikbanni. Hann er kannski enginn fyrirliði eða leiðtogi en það minnsta sem hann getur gert er að leggja sig allan fram og það hefur hann engan vegin gert."
Beckham gekk til liðs við LA Galaxy árið 2007 en fyrsta tímabilið þar olli miklum vonbrigðum, liðið komst ekki í úrslitakeppni MLS deildarinnar og þjálfarinn, Hollendingurinn Ruud Gullit, var látinn taka pokann sinn. Donovan heldur að bottför Gullit hafi haft neikvæð áhrif á Beckham.
,,Þegar David kom fyrst þá skipti það hann máli hvað hann var að gera, hann vildi standa sig og gera sitt besta fyrir liðið. En einhverntíman þá breyttist eitthvað og hann virtist ekki nenna þessu lengur. Ég held að það hafi gerst þegar Ruud hætti."
,,Það lágmark að hann sýni liðinu og liðsfélögunum þá virðingu sem við eigum skilið þegar hann snýr aftur hingað."



