Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 14:22
Magnús Már Einarsson
Yngvi fór alblóðugur af velli í gær en ætti að ná næsta leik
Yngvi liggur í grasinu í gær.
Yngvi liggur í grasinu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Yngvi Magnús Borgþórsson, varnarmaður ÍBV, fór meiddur af velli gegn Fylki í Pepsi-deild karla í gær en hann fékk olnbogann frá Andra Ólafssyni, liðsfélaga sínum, í andlitið.

Ljótur skurður opnaðist á nefi Yngva en hann slapp þó við nefbrot og stefnir að því að spila gegn FH í VISA-bikarnum á sunnudag.

,,Ég fékk olnbogann frá Andra í andltiið. Ég var að elta gæann og þegar að Andri var að snúa sér með hendina lenti ég beint á olnboganum á honum. Þetta var algjör óheppni," sagði Yngvi við Fótbolta.net í dag en sauma þurfti fjögur spor til að loka skurðinum í gær.

,,Ég hélt að þetta væri miklu verra, það blæddi svo mikið úr þessu og þetta var sárt. Ég hélt að ég hefði brotið bein í nebbanum eða kinnbeininu."

,,Ég brotnaði hinu megin fyrir þremur árum þegar að ég var að spila með KFS. Þá kinnbeinsbrotnaði ég og ég hélt fyrst að það væri að gerast aftur því að sársaukinn var svo mikill. Þetta leit miklu verra út en þetta var og ég er í góðum gír í dag."


Eyjamenn náðu sér alls ekki á strik í gær og voru 3-0 undir í leikhléi gegn sprækum Fylkismönnum.

,,Þetta var til háborinnar skammar í fyrri hálfleik hjá okkur og við vissum það manna best sjálfir."

,,Við gleymum þessum leik, við eigum fullt af heimaleikjum eftir og við erum að stóla á að fá stig út úr þeim, Hásteinsvöllurinn er okkar vígi og við ætlum að reyna að vinna sem flesta leiki þar."

,,Við vissum að þetta gæti orðið erfitt sumar og við gætum lent í mótlæti. Við ætlum ekkert að gefast upp, við ætlum að ekkert að láta þetta draga okkur niður."

Slapp
banner