Heimild: Sporting Life
Hollenski framherjinn Jan Vennegoor of Hesselink og skoski miðjumaðurinn Paul Hartley hafa yfirgefið Celtic.
Báðir leikmennirnir eru samningslausir og Tony Mowbray, nýráðinn stjóri Celtic, hefur gefið það út að þeir muni ekki fá nýjan samning.
Vennegoor of Hasselink hefur verið orðaður við gríska félagið Larissa að undanförnu.
Larissa mun síðar í mánuðinum mæta KR í Evrópubikarnum og því gæti verið að hann muni semja við gríska félagið og koma til Íslands.
Hartley er aftur á móti á óskalistanum hjá Hearts auk þess sem hann hefur átt í viðræðum við Iraklis Salonika í Grikklandi.




