Hér að neðan er hafin beint textalýsing á leik Keflavíkur og Valletta í Evrópudeild UEFA en leikurinn hefst klukkan 15:30. Við fylgjumst með því nýjasta sem gerist.
Valletta 3-0 Keflavík
1-0 Dyzon Falzon ('25)
2-0 Njonge Lobe Priso ('50)
3-0 Geert den Ouden ('72)
Valletta 3-0 Keflavík
1-0 Dyzon Falzon ('25)
2-0 Njonge Lobe Priso ('50)
3-0 Geert den Ouden ('72)
90. mín Leik lokið með 3-0 sigri Valletta. Dómarinn hafði bætt fimm mínútum við leiktímann. Það er því ljóst að Keflavík verður að skora fjögur mörk á heimavelli til að komast áfram.
'84. mín Keflavíkingum gengur erfiðlega í hitanum. Hörður Sveinsson fékk besta færi þeirra þegar hann átti góðan skalla eftir góða aukaspyrnu en það var varið.
Tvær skiptingar komnar hjá Keflavík
Magnús Þórir inná fyrir Jón Gunnar Eysteinsson
Stefán Örn inná fyrir Brynjar Örn Guðmundsson.
'72. mín Valletta skora þriðja markið. Geert den Oudenþeirra slapp einn innfyrir og skoraði. Keflvíkingar vildu fá dæmda rangstöðu en dómarinn var ekki á sama máli.
70. mín Leikurinn er mjög bragðdaufur búinn að vera og besta kaflanum var að ljúka þegar dómari leiksins flautaði á vatnspásu í hitanum. Þetta er í annað sinn í leiknum sem hann gerir það. Keflavík hefur aðeins verið að sækja meira en vantar herslumuninn uppá að skapa sér eitthvað.
50. mín Njonge Lobe Priso leikmaður Valletta komst einn í gegn og setti boltann í gegnum klofið á Lasse Jörgensen og heimamenn komnir í 2-0.
'47. mín Keflavík hefði átt að fá víti þegar brotið var á Magnúsi Sverri í teignum. Dómarinn var ekki á sama máli og spjaldaði Magnús Sverri fyrir leikaraskap.
'46. mín Síðari hálfleikur er hafinn og engar breytingar hafa verið gerðar á liðunum.
45. mín Hálfleikur
Keflavík var nálægt því að komast í gott tækifæri undir lok fyrri hálfleiks en sendingin á Hörð Sveinsson var aðeins of föst. Annars hefur ekki verið mikið um færi í leiknum. Guðjón Árni Antoníusson hefur verið bestur í liði Keflavíkur og fram á við hafa þeir Magnús Sverrir og Simun Samuelsen staðið sig vel en liðið annars nokkuð jafnt og allir að standa sig vel.
'38. mín Keflvíkingar duttu aðeins niður en hafa verið að koma upp aftur núna. Þeir leyfa heimamönnum að sækja á sig en beita svo skyndisóknum. Jordi Cruyff frægasti leikmaður Valletta sem á árum áður lék með Manchester United átti skot í stöng fyrir skömmu en hann datt þá einn í gegn og skaut í utanverða stöngina. Cruyff er líkt við boxara á vellinum enda virðist hann aðeins vera í miðjuhringnum á vellinum.
'25. mín Valletta skoraði mark eftir klaufaskap í vörn Keflavíkur. Framherji þeirra komst í gegn og Lasse Jörgensen varði boltann út. Þar fór hann í Bjarna Hólm Aðalsteinsson og aftur til framherjans Dyzon Falzon sem skoraði.
'25 mín Fyrri hálfleikur er hálfnaður og Keflavíkurliðið er sterkara þessar mínúturnar. Bæði lið hafa fengið tvö hálffæri.
'10 mín: Heimamenn í Valletta sækja meira og pressa framarlega á Keflavíkurliðið en engin færi hafa komið í leikinn á fyrstu tíu mínútunum. Keflavík kemst líka upp völlinn og er búið að fá hornspyrnu einu sinni í leiknum.
15:30 Leikurinn er hafinn.
14:20: Keflavík leikur að venju í albláum búningum sínum en heimamenn í Valletta leika í hvítum búningum.
13:50 Jóhann Birnir Guðmundsson, Haukur Ingi Guðnason og Hólmar Örn Rúnarsson eru allir meiddir og fóru því ekki með liðinu til Möltu. Þá er Guðmundur Steinarsson ekki kominn með leikheimild fyrr en þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí.
13:35: Allir leikmenn Keflavíkur eru heilir í leikinn og klárir í slaginn en innan við tveir tímar eru í að leikurinn hefjist. 30 stiga hiti er á vellinum og sól. Aðstæður eru ágætar en leikið er á gervigrasi.
13:30 Byrjunarlið Keflavíkur er klárt. Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur gerir eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik gegn Grindavík. Brynjar Örn Guðmundsson kemur inn á kantinn og við það fer Stefán Örn Arnarson á bekkinn. Brynjar hefur alla jafna spilað sem bakvörður hjá Keflavík en nú styrkir Kristján væntanlega varnarspilið á kantinum til að stöðva stórstjörnu Valetta manna, Jordi Cruyff.
Byrjunarlið Keflavíkur 4-4-2
Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Alen Sutej, Nicolai Jörgensen, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Einar Orri Einarsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Simun Samuelsen, Hörður Sveinsson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Tómas Karl Kjartansson, Þorsteinn Atli Georgssson, Viktor Guðnason, Stefán Örn Arnarson, Magnús Þórir Matthíasson, Magnús Þór Magnússon.



