Í dag var dregið í riðla í Evrópukeppninni í Futsal og voru Íslandsmeistararnir í Hvöt í pottinum.
Hvatarmenn munu halda til Austurríkis þar sem þeir etja kappi við heimamenn í 1 FC All Stars Wiener Neustadt, Asa Tel-Aviv frá Ísrael og Erebuni Yerevan frá Armeníu.
Riðillinn verður leikinn á tímabilinu 15. - 23. ágúst en nánari dagsetningar verða tilkynntar síðar.
Hvöt verður annað íslenska félagið til að taka þátt í Evrópukeppninni en Víðismenn riðu á vaðið í fyrra.


