Heimild: Sky
Mortiz Volz hefur yfirgefið Fulham eftir fimm ára dvöl hjá félaginu en samningur hans er útrunninn.
Þessi þýski varnar og miðjumaður lék alls 146 leiki á ferli sínum með Fulham.
Volz, sem var áður hjá Arsenal, fékk takmörkuð tækifæri á síðustu leiktíð og fór til Ipswich á láni þar sem hann lék 22 leiki.
Volz er ekki eini leikmaðurinn sem er á förum frá Fulham því að framherjinn Collins John er einnig að fara auk þess sem danski miðjumaðurinn Leon Andreason hefur gengið til liðs við Hannover eftir að hafa verið í láni hjá félaginu.
Sjá einnig:
Hin Hliðin - Mortiz Volz (Ágúst 2007)



