Heimild: Sky
Jack Wilshere hefur gert nýjan langtímasamning við Arsenal en hann fetar þannig í fótspor Aaron Ramsey sem gerði nýjan samning víð félagið í gær.
Hinn sautján ára gamli Wilshere lék sinn fyrsta leik með Arsenal í 4-0 sigri liðsins á Blackburn í september síðastliðnum.
Þessi efnilegi leikmaður hefur staðið sig vel með unglinga og varaliði Arsenal en hann fékk tækifæri í átta leikjum með aðalliðinu á síðustu leiktíð.
Wilshere, sem er miðjumaður, náði meðal annars að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið í sigri á Sheffield United í ensku deildabikarnum.




