Breiðablik 0-0 Fjölnir
90 mín: Hundleiðinlegum leik Blika og Fjölnis er nú lokið fór hann 0-0.
85 mín:Arnór Sveinn átti virkilega skot úr aukaspyrnu alveg við markteig gestanna og þurfti Hrafn í marki Fjölnis að hafa sig allan við til að slá boltann yfir.
77 mín: Nákvæmlega ekkert að gerast hér í Kópavogi, hvorugt lið virðast vera að skapa sér alvöru færi en skyndisóknir Fjölnis hafa þá verið hættulegri en sóknartilburðir Blika.
67 mín: Fjölnismenn komust upp hægra megin og kom fyrirgjöf sem Gunnar Már virtist ætla skalla örugglega í netið en hann klikkaði eitthvað og skallaði langt framhjá. Fjölnismenn virðast stjórna leiknum þrátt fyrir að Blikar séu talsvert meira með boltann.
60 mín: Aðeins 605 áhorfendur eru hér að horfa á þennan leik og er það með því minnsta á þessu tímabili í Pepsi-deildinni.
57 mín: Gunnar Már leikmaður Fjölnis komst einn inn fyrir eftir að hafa unnið varnarmann Fjölnis í skallabolta en ákvað að reyna langskot í stað þess að fara nær marki Blika og skaut framhjá.
54 mín: Skyndisóknir Fjölnis verða sífellt líflegri og kæmi ekki að óvart ef þeir myndu ná að skora með þessu áframhaldi.
50 mín: Kristinn Jónsson átti skot fyrir utan teig rétt framhjá marki Fjölnis, þarna munaði litlu að Blikar kæmust yfir.
46 mín: Seinni hálfleikur er byrjaður og Fjölnismenn gerðu breytingu á sínu liði og kom inn hinn efnilegi Kristinn Freyr Gunnarsson inná í stað Andra Vals Ívarssonar.
Hálfleikur Staðan hér er 0-0 og ekkert í gangi, satt best að segja hundleiðinlegur leikur og vona ég að leikurinn verði talsvert betri í seinni hálfleik.
45 mín: Allt varð vitlaust hér í Kópavogi þegar Ingvar Kale virtist að margra mati sló boltann með höndunum fyrir utan teig en ekkert var dæmt.
42 mín: Fjölnismenn eru búnir að vinna sér inn í leikinn og hafa verið betur seinustu mínúturnar.
34 mín: Kristinn Steindórsson fékk frábært tækifæri til að koma Blikum yfir eftir stungusendingu frá Finni Orra en missti boltann útaf endalínu þegar hann ætlaði að komast framhjá Hrafni í marki Fjölnis.
31 mín: Arnór Sveinn leikmaður Blika komst einn inn fyrir vörn Fjölnis og datt í teignum og vildi fá víti. Hann fékk það þó ekki en hann fékk gult spjald.
24 mín: Tómas Leifsson stakk varnarmenn Blika af og átti ágætt skot að marki en Ingvar Kale kom útá móti og varði.
19 mín: Lítið hefur gerst í leiknum seinustu 10 mínúturnar en bæði lið eru að reyna koma sér inní leikinn og hefur áhorfandi stolið athygli fólks með að blása í lúður sem hann kom með á leikinn og angrar flesta áhorfendur.
9 mín: Arnar Grétarsson átti stórhættulegt skot fyrir utan teig, eftir Arnar Sigurðsson hafði stolið boltanum af varnarmanni Fjölnis, en Hrafn markmaður varði vel í horn.
7 mín: Svo virðist vera að Olgeir Sigurgeirsson hafi fengið einhverskonar högg á sig vegna þess að hann virðist hálf meiddur og hleypur furðulega.
2 mín: Blikar eiga góðan skalla að marki Fjölnis eftir sendingu af vinstri kanti, góður skalli hjá Arnari Sigurðssyni en Hrafn Davíðsson var vel á verði í markinu.
1 mín: Leikurinn er hafinn og byrja Blikar með boltann.
19.15: Stuðningsmenn Blika syngja afmælissönginn fyrir hann Kára Ársælsson sem er 24 ára í dag.
19.12: Vekur það athygli að helsti markaskorari Blika, hann Alfreð Finnbogason er meiddur og verður líklega frá í 7 daga.
19.00: Dómarinn kvöldsins er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og honum til aðstoðar eru Tomasz Jacek Napierajcyk og Kári Gunnlaugsson. Þess má til gamans geta að Jack Napier er nafn mannsins sem verður Jokerinn í fyrstu Batman myndinni.
18.45: Komið þið sælir kæru lesendur og verið velkomnir í beina textalýsingu Fótbolti.net. Hér í kvöld munu Breiðablik og Fjölnir etja kappi í 10. umferð Pepsi-deildar karla. Við munum að sjálfsögðu fylgjast grannt með gangi mála í leiknum og segja frá helstu tíðindum leiksins. Liðin eru mætt útá völlinn að hita upp.
Fyrir þennan leik eru Blikar í 7. sæti Pepsi-deildarinnar en Fjölnir skipta 12. sætið sem er jafnframt það neðsta og er sigur í kvöld bráðnauðsynlegur fyrir liðið.
Byrjunarlið Blika:Ingvar Þór Kale, Finnur Orri Margeirsson, Kári Ársælsson, Kristinn Steindórsson, Arnar Grétarsson, Olgeir Sigurgeirsson, Elfar Freyr Helgason, Arnar Sigurðsson, Guðmundur Kristjánsson, Kristinn Jónsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Byrjunarlið Fjölnis: Gunnar Valur Gunnarsson, Gunnar Már Guðmundsson, Ólafur Páll Johnson, Magnús Ingi Einarsson, Jónas Grani Garðarsson, Ásgeir Aron Ásgeirsson, Tómas Leifsson, Hrafn Davíðsson, Illugi Þór Gunnarsson, Andri Valur Ívarsson, Vigfús Arnar Jósepsson.



