Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 16:36
Mist Rúnarsdóttir
Byrjunarlið U17 kvenna gegn Hollandi
Kvenaboltinn
Byrjunarliðið í fyrsta leiknum hjá íslenska liðinu.
Byrjunarliðið í fyrsta leiknum hjá íslenska liðinu.
Mynd: Ingibjörg Hinriksdóttir
Íslenska U17 landslið kvenna leikur í dag gegn Hollendingum í riðlakeppni opna Norðurlandamótsins.

Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarliðið í leiknum sem hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Byrjunarliðið:

Markvörður: Birna Berg Haraldsdóttir, fyrirliði

Hægri bakvörður: Sara Hrund Helgadóttir

Vinstri bakvörður: Lára Kristín Pedersen

Miðverðir: Heiðrún Guðmundsdóttir og Hulda Margrét Brynjarsdóttir

Hægri kantur: Hildur Hauksdóttir

Vinstri kantur: Ásta Eir Árnadóttir

Miðjumenn: Þórdís Sigfúsdóttir, Hulda Sigurðardóttir og Katrín Gylfadóttir

Framherji: Guðmunda Brynja Óladóttir

Fjolla Shala, leikmaður Fylkis, leikur ekki með liðinu í dag þar sem hún tekur út leikbann vegna brottvísunar í síðasta leik.

Þetta er síðasti leikur íslensa liðsins í riðlakeppninni en stelpurnar töpuðu 5-2 fyrir Noregi í fyrsta leik sínum og steinlágu svo 6-0 fyrir Þýskalandi í fyrra dag.

Hollenska liðið er án stiga líkt og það íslenska og því má búast við jöfnum og spennandi leik í dag.
Slapp
banner
banner
banner