Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 17:18
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Ross Turnbull til Chelsea (Staðfest)
Chelsea hefur fengið markvörðinn Ross Turnbull til liðs við sig frá Middlesbrough en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.

Samningur Turnbull við Middlesbrough rann út í fyrradag og því kemur hann frítt til Chelsea.

Turnbull var aðalmarkvörður Boro á fyrri hluta síðasta keppnistímabils áður en hann missti stöðu sína til Brad Jones.

Hjá Chelsea mun Turnbull væntanlega fá það hlutverk að berjast við Hilario um varamarkmannsstöðuna.

Hilario hefur verið varamarkvörður síðan að Carlo Cudicini fór til Tottenham í janúar en þessi 33 ára gamli Portúgali hefur gert nýjan samning við Chelsea til ársins 2011.
Slapp
banner
banner
banner