Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 21:23
Sigmann Þórðarson
BEINT: Stjarnan 1-1 KR (Leik lokið)
Fagna Stjörnumenn í kvöld?
Fagna Stjörnumenn í kvöld?
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Eða jafnvel KR-ingar?
Eða jafnvel KR-ingar?
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Stjarnan 1-1 KR
0-1 Björgólfur Takefusa (30, víti)
1-1 Tryggvi Sveinn Bjarnason (leiðrétt) (94)

94. mín Mark!: Daníel Laxdal var að skora og jafna fyrir heimamenn eftir mikla ppressu inn í KR teignum. KR-ingar komu boltanum ekki burtu og Daníel náði á endanum að koma boltanum yfir línuna og tryggja heimamönnum baráttu sigur. KR-ingar fengu þarna að bragða á sínu eigin meðali. Leikurinn endar því á dramatískan hátt þrátt fyrir getgátur undirritaðs.

92. mín: KR-ingar virðast vera að landa þessu. Stjörnumenn komast lítt áleiðis og fátt bendir til dramatískra endaloka, en þetta er ekki búið enn.

83: KR-ingar gera tvöfalda skiptingu. Inn á koma sóknarmennirnir Guðmundur Pétursson og Atli Jóhannsson. Logi virðist því ekkert vera á því að þétta vörnina neitt frekar, enda hafa Stjörnumenn ekki verið að komast mikið áleiðis gegn þeim sem þar standa nú þegar.

69 mín: KR-ingar farnir að draga sig enn neðar á völlinn og farnir að freista þess að halda fengnum hlut. Það gæti reynst þeim dýrt því ýmislegt getur gerst á lokamínútum leikja eins og KR-ingar sönnuðu sjálfir í síðasta leik sínum með eftirminnilegum hætti.

59. mín: Hér er allt í járnum ennþá. Stjörnumenn eru farnir að sækja meira og það gefur KR-ingum færi á hröðum sóknum sem þeir reyna að nýta sér til hins ítrasta. Lítið hefur þó verið um opin færi hingað til.

1459: áhorfendur eru á leiknum sem mun vera met hér í Garðabænum í sumar.

49. mín: Leikurinn er byrjaður aftur hér í Garðarbænum. Heimamenn koma vel út úr leikhléinu og setja mikla pressu á KR-inga. Þeir vildu fá vítaspyrnu hér áðan en fengu ekkert fyrir sinn snúð þar.

KR: Stefán Logi Magnússon, Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Mark Rutgers, Jordao Diogo, Jónas Guðni Sævarsson, Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Óskar Hauksson, Prince Rajcomar, Björgólfur Takefusa.

Stjarnan: Bjarni Þórður Halldórsson, Guðni Rúnar Helgason, Tryggvi Bjarnason, Daníel Laxdal, Hafsteinn Helgason (39. Jóhann Laxdal), Björn Pálsson, Birgir Birgisson, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Halldór Orri Björnsson, Ellert Hreinsson, Arnar Már Björgvinsson.

45. mín: Það er kominn hálfleikur í þennan svo að segja líflega leik sem þó hefur ekki endilega boðið upp á mörg marktækifæri en mikla baráttu og hressileg atvik.

41. mín: Stjörnumenn eru að ná áttum aftur. Ellert Hreinsson var að skalla framhjá eftir aukaspyrnu Halldórs Orra, sem svo síðar átti skot sem Stefán Logi varði í horn.

30. mín Mark!: Björgólfur Takefusa var að skora úr vítaspyrnu. Skúli Jón átti sendingu inn fyrir vörn Stjörnumanna sem Hafsteinn Rúnar missti framhjá sér og því komst Óskar Örn einn í gegn. Bjarni Þórður kom út úr marki sínu og braut á Óskari og ekkert annað í stöðunni en að dæma vítaspyrnu.

26. mín: Baldur Sigurðsson sleppur inn fyrir eftir sendingu frá Prince Rajcomar. Skot hans fer hins vegar framhjá úr góðu færi.

23. mín: Ætli það sé ekki kominn tími á að reyfa það sem gerst hefur á meðan netið var í ólagi. Leikurinn byrjaði fjörlega en Tryggvi Sveinn átti skalla framhjá eftir horn strax á fyrstu mínútu leiksins. Nokkrum mínútu síðar voru varnamenn Stjörnunnar í einhverjum vandræðum að hreinsa frá eftir sókn KR sem endaði með því að Prince Rajcomar komst í boltann en skot hans fór í varnarmann. Prince skoraði síðan mark stuttu síðar sem dæmt var af vegna rangstöðu.

Tryggvi Sveinn bjargaði svo frábærlega fyrir Stjörnumenn þegar hann renndi sér á eftir Prince Rajcomar sem var að sleppa inn fyrir vörnina.

Stjörnumenn hafa verið meira með boltann það sem af er en KR-ingar eru sí ógnandi með hröðum sóknum.

19:33: Þess má geta að liðin sitja hlið við hlið í töflunni í 3. og 4. sæti deildarinnar. KR-ingar eru stigi ofar en hafa þó leikið einum leik meira og því er til mikils að vinna í kvöld.

19:30: Komið þið sælir kæru lesendur og verið velkomnir í beina textalýsingu Fótbolti.net. Hér í kvöld munu Stjarnan og KR etja kappi í 10. umferð Pepsi-deildar karla. Við munum að sjálfsögðu fylgjast grannt með gangi mála í leiknum og segja frá helstu tíðindum leiksins. Tæknin var ekki með undirrituðum í liði en þau mál hafa verið leyst og munu byrjunarliðin koma inn fljótlega.
Slapp
banner
banner