Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 21:48
Alexander Freyr Tamimi
BEINT: Valur 0 - 5 FH (Leik lokið)
Valur og FH mætast hér á Vodafonevellinum kl. 20:00.
Valur og FH mætast hér á Vodafonevellinum kl. 20:00.
Mynd: FH.is
Valur 0 - 5 FH
0-1 Tryggvi Guðmundsson ('6)
0-2 Atli Viðar Björnsson ('14)
0-3 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson ('23)
0-4 Tryggvi Guðmundsson ('60)(Víti)
0-5 Davíð Þór Viðarsson ('90+2)

Leik lokið: Leik Vals og FH hér á Vodafonevellinum er lokið með stórsigri FH-inga, 5-0. Ótrúlegar úrslit hérna á Vodafonevellinum og er erfitt að sjá hverjir geta steypt FH af stóli í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Viðtöl og umfjöllun koma síðra í kvöld.

90+2 mín: MAAAAARK!!! Davíð Þór Viðarsson bætir við fimmta marki FH-inga og er niðurlæging Valsara nú fullkomnuð!!! Atli Viðar Björnsson átti góða sendingu á Davíð sem lagði boltann örugglega í netið. Gersamlega ótrúlegaar tölur hérna á Vodafonevellinum, undirritaður bjóst ekki við þessu.

90. mín: Atli Sveinn Þórarinnson fær gult spjald. Við erum komin í uppbótartíma og hann er þrjár mínútur.

86. mín: Stuðningsmenn Vals yfirgefa völlinn í Fylkingu og skal engan undra. Stuðningsmenn FH vinka þeim bless.

84. mín: Valsarar gera einnig sína síðustu skiptingu. Guðmundur Steinn Hafsteinsson fer af velli og í hans stað kemur Ian Jeffs. Spurning hvort þetta verði kraftaverkaskiptingin og Valsarar skori fimm mörk á lokasprettinum.

82. mín: FH-ingar gera sína þriðju og síðustu skiptingu. Hákon Atli Hallfreðsson kemur inn fyrir Ásgeir Gunnar Ásgeirsson.

80. mín: Eins og sést á skrifum mínum (eða skorti á þeim) síðustu mínúturnar er krafturinn aðeins farinn úr leiknum. Leikmenn vita allir hvernig þessi leikur er að fara og eru þeir bara að bíða í rólegheitunum þar til honum lýkur, virðist vera.78. mín: Sverrir Garðarsson kemur inn á fyrir lið FH í fyrsta skiptið síðan 2007. Út í hans stað fer Tommy Nielsen sem hefur átt mjög stöðuga leik í vörn FH.

76. mín: Atli Viðar Björnsson nær skoti úr þröngu færi og það fer naumlega framhjá markinu. Atli búinn að vera líflegur í dag og hefði hann átt skilið að bæta við sínu öðru marki þarna.

73. mín: Sókn heimamanna er aðeins að þyngjast og hafa þeir fengið nó nokkrar hornspyrnur og úr einni þeirra kom skalli sem fór naumlega yfir rétt í þessu. FH gerir skiptingu, út af fer Tryggvi Guðmundsson og inn í hans stað kemur gamli Valsarinn Matthías Guðmundsson. Tryggvi hefur átt fínan leik í dag og klappa stuðningsmenn FH vel fyrr honum.

66. mín: Viktor Unnar stimplar sig strax inn í leikinn með góðri rispu inni í teig sem endar með ágætis skoti sem fer þó beint á Daða Lárusson sem slær boltann aftur fyrir í horn.

64. mín: Valsarar gera heiðarlega tilraun til að rétta aðeins úr kútnum. Baldur Ingimar Aðalsteinsson á skot sem lendir í þverslánni. Síðan er einhver barátta inni í teig sem endar með því að Daði Lárusson markvörður liggur óvígur á vellinum og virðist hann ekkert vera á því að standa upp. Valsarar gera skiptingu, Ólafur Páll Snorrason fer út af og inn í hans stað kemur Viktor Unnar Illugason.

63. mín: Ég hef aldrei verið mótfallinn gestrisni, alls ekki, en mér finnst Valsararnir nú vera full blíðir við FH-ingana. Þeir leyfa þeim algerlega að niðurlægja sig fyrir framan þá 1224 áhorfendur sem lögðu leið sína á Vodafonevöllinn.

60. mín: MAAAAARK!! Tryggvi Guðmundsson skorar örugglega úr vítaspyrnunni. Haraldur skutlaði sér til vinstri en skot Tryggva fór alveg í vinstra hornið. Aðdragandi vítisins var sérstakur, Atli Guðna náði skoti sem fór rétt framhjá og virtist bara þar við sitja. En nei, Garðar Örn benti á punktinn og var líkast til um peysutog að ræða.

59. mín: VÍTI!! Brotið á Atla Guðnasyni inni í vítateig Vals. Tryggvi Guðmundsson fer á punktinn.

57. mín: Valsmenn hafa fengið liðsauka úr óvæntri átt. Pínulítill krakki, ekki eldri en tveggja ára, hljóp inn á völlinn í miðjum leik og kom móðir hans í humátt á eftir honum. Hvorugt þeirra náði þó að koma við sögu í leiknum áður en þau voru farin aftur út af. Alger synd, Valsarar hefðu þurft á þessum tveimur að halda.

54. mín: Haraldur Björnsson hefur nokkrum sinnum gripið vel inn í hjá Val og er hann í raun sá eini sem hægt er að segja að hafi átt fínan leik fyrir heimamenn, sem eru annars frekar daprir.

49. mín: FH-ingar eiga stórkostlega sókn sem munar engu að endi með marki. Þeir leika boltanum glæsilega á milli sín og spila stórbrotinn einnar snertingar bolta sem endar með því að Atli Guðnason fær stungusendingu inn í teiginn en honum tekst ekki að vippa knettinum yfir Harald í marki Vals sem klófestir boltann.

46. mín: Síðari hálfleikurinn er hafinn og það verður forvitnilegt að sjá hvað gerist. Tilraun mín til að fá skoðanir ykkar á leiknum misheppnuðust algerlega en pósthólfið mitt er ennþá opið. Ef þú hefur eitthvað bitastætt að segja, endilega láttu gossa. Það er annars að frétta að Valsarar gerðu eina breytingu í hálfleik. Guðmundur Viðar Mete fór út af velli og Baldur Ingimar Aðalsteinsson kom inn í hans stað.

Hálfleikur: Endilega komið með einhverjar spár og álit ykkar á leiknum, ef þið eruð að horfa á hann í sjónvarpinu? Hvað finnst ykkur um þetta? Sendið mér línu á [email protected] og hver veit nema að þín skoðun eða spá birtist hér á síðunni.

Hálfleikur: Þá er fyrri hálfleiknum lokið og eru FH-ingarnir í mjög svo ákjósanlegri stöðu, 3-0, eftir mörk frá Tryggva Guðmundssyni, Atla Viðari Björnssyni og Ásgeiri Gunnari Ásgeirssyni. Þeir hefðu getað bætt við mörkum, enda Valsarar með eindæmum arfaslakir hér í kvöld. Forvitnilegt verðu að sjá hvernig síðari hálfleikurinn þróast, en úrslitin virðast liggja fyrir.

44. mín: Atli Viðar á frábæran sprett upp hægri kantinn og hann nær síðan banvænni lágri fyrirgjöf en því miður fyrir hann nær enginn FH-ingur til knattarins. Skömmu síðar kemst Ásgeir Gunnar í ákjósanlegt skotfæri eftir að varnarmaður Vals missir boltann á hættulegum stað. Skot Ásgeirs var þó afleitt og fór boltinn vel framhjá.

43. mín: Guðmundur Steinn Hafsteinsson á skot að marki FH en það fer rétt framhjá markinu. Heppnin ekki beint að elta Valsarana í kvöld en þeir eru allavega aðeins að taka við sér.

40. mín: Fyrsta gula spjald leiksins lítur dagsins ljós en það fær Bjarni Ólafur Eiríksson fyrir brot á Pétri Viðarssyni.

37. mín: FH-ingar vilja fá vítaspyrnu eftir að Ásgeir Gunnar er sleginn í andlitið inni í teig, en ekkert er dæmt. Furðulegt nokk. Þetta hefði hugsanlega átt að vera víti en við verðum bara að fylgja því sem dómarinn segir.

32. mín: Ef ég fengi mér nammibita í hvert skiptið sem Valsarar tapa boltanum eða gefa misheppnaða sendingu væri ég orðinn offitusjúklingur. Þeir eru bara í tómu tjóni og ná ekki að byggja upp eina einustu almennilegu sókn.

28. mín: Skotárásin heldur áfram. Tryggvi Guðmunds dúndrar boltanum að marki en Haraldur í markinu ver vel í hornspyrnu.

27. mín: Það munaði engu að tannlæknirinn Ásgeir Gunnar bætti við sínu öðru marki. Matthías Vilhjálmsson átti góða fyrirgjöf frá hægri og var Ásgeir hársbreidd frá því að pota knettinum inn. Valsararnir líta bara út eins og hauslausar hænur hér á Vodafonevellinum í dag og spyr maður sig hvort að missirinn af Willum Þór Þórssyni sé virkilega svona rosalegur.

26. mín: Ólafur Páll Snorrason tekur fína aukaspyrnu af talsvert löngu færi fyrir Val en Daði Lárusson í markinu ver vel og heldur boltanum.

23. mín: MAAAAARK!!! Það eru rúmar 20 mínútur búnar af leiknum og staðan er orðin 3-0 fyrir FH, gersamlega ótrúlegt!! Í þetta skiptið áttu þeir laglega sókn eftir að hafa unnið boltann af Valsmönnum og endaði hún á því að boltinn barst inn í teig eftir fyrirgjöf frá vinstri og þar var Ásgeir Gunnar Ásgeirsson tilbúinn að pota knettinum inn. 3-0, þetta er alveg ótrúlegt! Hvað er eiginlega í vændum? Verður þetta algjört rúst???

22. mín: FH-liðið er þokkalega sprækt. Atli Viðar átti fastan skalla sem Haraldur greip þó örugglega en það gengur hvorki né rekur hjá heimamönnum. Sendingarnar þeirra eru flestar misheppnaðar og þeir eru bara lélegir.

14. mín: MAAAAAARK!!! FH-ingar bæta við öðru marki og er það af laglegari endanum. Atli Guðnason átti frábæran sprett upp vinstri kantinn og gaf svo góða fyrirgjöf á nafna sinn Atla Viðar Björnsson. Atli tók vel á móti boltanum á kassann og vippaði honum yfir Harald í markinu. Stórglæsilegt spil og mjög vel klárað hjá Atla Viðari.

13. mín: Valsarar vildu fá víti eftir að Bjarni Ólafur Eiríksson féll inni í teignum eftir samskipti sín við Pétur Viðarsson en ekkert að þessu.

11. mín: Valsarar eru aðeins að jafna sig eftir áfallið og eru nú með ágætis tök á leiknum. Þeir hafa átt tvær ágætis sóknir en hafa þó ekki skapað neitt hættulegt.

6. mín: MAAAAAAARK!!!! FH eru komnir yfir með marki frá Tryggva Guðmundssyni!!! Atli Viðar Björnsson vann boltann af Guðmundi Viðari Mete á hættulegum stað og gaf inn góða stoðsendingu á Tryggva sem lagði knöttinn í netið. Frábærlega gert hjá Atla og vel klárað hjá Tryggva. Nú er á brattann að sækja fyrir heimamenn og spurning hvernig þeir taka við sér eftir þetta.

3. mín: Tryggvi Guðmundsson á skalla naumlega yfir eftir góða fyrirgjöf frá Matthíasi Vilhjálmssyni. Þarna munaði alls ekki miklu og hefði það verið áfall fyrir heimamenn að lenda strax undir.

1. mín: Leikurinn byrjar vel, klukkan fer ekki í gang. Svo fer hún reyndar í gang en undirritaðann grunar sterklega að hún sé örlítið eftir á. Við fylgjum henni bara samt þar til annað kemur í ljós.

20.00: Dömur mínar og herrar, nú hefjast leikar. Það eru heimamenn sem byrja með boltann og leika þeir í átt að hinni stórskemmtilegu Keiluhöll.

19.57: Nú fer heldur betur að styttast í þetta og "fyrir-leik fiðringurinn" kominn í mann. Liðin ganga inn á völlinn með Garðar Örn dómara í fararbroddi. Og reyndar nokkra krakka sem eru á undan þeim með bláan flaggandi fána.

19.55: Það muna sjálfsagt flestir eftir seinasta leik liðanna hér á Vodafonevellinum sem lauk með 1-0 sigri FH. Mark Hafnfirðinganna skoraði Arnar Gunnlaugsson úr vítaspyrnu í uppbótartíma - gerist það mikið dramatískara? Vonandi fáum við smá dramagaman hér á Vodafonevöllinn í kvöld.

Seinni leikur liðanna á tímabilinu í fyrra í Krikanum var minna dramatískur. Þar vann FH öruggan 3-0 sigur með tveimur mörkum frá Tryggva Guðmundssyni og einu frá Matthíasi Guðmundssyni fyrrverandi Valsara. Það er nú kannski smá drama, eða hvað?

19.49: Valur og FH eru ekki beinlínis í líkri stöðu í deildinni. Valsararnir eru í 6. sæti deildarinnar með 18 stig en FH er í góðum gír á toppinum með 27 stig. Stuðningsmenn FH láta vel í sér heyra korteri fyrir leik en lítið heyrist Valsmegin.

19.41: Þó svo að það standi ekki á skýrslunni er Garðar Örn Hinriksson dómari leiksins í kvöld. Sem betur fer þekkti undirritaður kappann á skínandi kollinum og getur því borið ykkur lesendum þessi tíðindi.

19.38: Willum Þór Þórsson þjálfari Vals hætti hjá félaginu í gær og mun aðstoðarþjálfari hans, Þorgrímur Þráinsson, stýra liðinu í kvöld, en leitin að arftaka Willums er enn í gangi. Þorgrímur vann einn leik og tapaði einum á meðan Willum var erlendis á þjálfaranámskeiði og verður forvitnilegt að sjá hvernig honum mun ganga gegn Íslandsmeisturunum.

19.36: Byrjunarliðin eru komin hér á síðuna og má sjá þau hér neðst. Fjórar breytingar eru á liði Vals frá því að þeir biðu afhroð gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Þeir Pétur Georg Markan, Baldur Bett og Ian Jeffs fara á bekkinn en Helgi Sigurðsson er frá vegna meiðsla. Í stað þeirra koma þeir Steinþór Gíslason, Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, Einar Marteinsson og Guðmundur Steinn Hafsteinsson inn,

Ein breyting er á liði FH frá því í 3-0 sigri liðsins á ÍBV. Hjörtur Logi Valgarðsson er fjarverandi vegna meiðsla og kemur Freyr Bjarnason inn í vinstri bakvörðinn í hans stað.

19.30: Góða kvöldið kæru lesendur og verið hjartanlega velkomnir í beina textalýsingu Fótbolti.net frá leik Vals og FH á Vodafonevellinum. Leikurinn hefst á slaginu 20:00 og munum við að sjálfsögðu uppfæra ykkur ef eitthvað merkilegt gerist.

Byrjunarlið Vals: Haraldur Björnsson, Steinþór Gíslason, Guðmundur Viðar Mete (46. Baldur Ingimar Aðalsteinsson), Atli Sveinn Þórarinsson, Reynir Leósson, Ólafur Páll Snorrason, Sigurbjörn Hreiðarsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Einar Marteinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Marel Baldvinsson.

Byrjunarlið FH: Daði Lárusson, Guðmundur Sævarsson, Pétur Viðarsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Davíð Þór Viðarsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Atli Viðar Björnsson, Tryggvi Guðmundsson.

Slapp
banner
banner