ÍA 1 - Víkingur R. 1
1 - 0 Guðjón Heiðar Sveinsson ÍA ( 8 )
1 - 1 Pétur Örn Svansson Víkingur ( 73 )
1 - 0 Guðjón Heiðar Sveinsson ÍA ( 8 )
1 - 1 Pétur Örn Svansson Víkingur ( 73 )
93. Mín: Leiknum hér á skaganum er lokið með jafntefli. Nánari umfjöllun og viðtöl koma á fótbolti.net síðar í kvöld.
85. Mín: Magnús Þormar bjargar Víkingum enn og aftur en hér var það Gísli Freyr sem var kominn einn á móti honum eftir stungusendingu og átti ágætis skot sem Magnús Þormar varði vel. Gísli Freyr átti að gera betur þarna en eitthvað misfórst þetta hjá honum. Bæði lið leggja nú kapp á að sigra leikinn og spila bæði lið mjög framarlega.
80. Mín: Magnús Þormar markmaður Víkinga bjargar hér á línu eftir mistök sem hann sjálfur gerði. Magnús var kominn í skógarferð langt útúr teig og boltinn barst til Gísla Freys Brynjarssonar sem sendi hann á Ólaf Val Valdimarsson sem tók langskot og var boltinn á leiðinni inn þegar Magnús Þormar kastar sér inn í markið og nær á einhvern óskiljanlegan hátt að blaka boltanum útaf!
75. Mín: Þetta mark Víkinga var gjörsamlega óverjandi fyrir Trausta í marki Skagamanna. Enda kom markið í raun eins og þruma úr heiðskýru lofti. Pétur var með boltann og lét allt í einu vaða af tæplega 25 metra færi og boltinn lá í markinu. Virkilega flott mark.
73. Mín:Mark!!!!! Pétur Örn Svansson jafnar hér metin með stórbrotnu marki af tæplega 25 metra færi:
66. Mín: Þetta er búið að vera hálfgert miðjumoð hérna hjá báðum liðum þrátt fyrir færi hjá Víkingum hér rétt áðan. Hvorugt lið er að skapa sér einhver færi sem um munar. Það er helst baráttan sem er hér í fyrirrúmi.
62. Mín: Skagamenn eru búnir að vera heppnir núna hér í tvígang en Víkingsmenn hafa fengið tvær hornspyrnur og í bæði skiptin sköpuðust hættuleg færi fyrir þá en Skagamenn með alla sína menn í vörn björguðu naumlega.
55 Min: Leikurinn er þokkalegur á að horfa núna. Seinni hálfleikurinn er í raun eins og endurtekning á byrjun fyrri hálfleiks, en nú eru það skagamenn sem eru búnir að eiga 3 hornspyrnur á stuttum tíma.
53. Mín: Það er breyting hjá Skagamönnum en Bjarki Gunnlaugsson fór útaf og Ólafur Valur Valdimarsson kom í hans stað.
45. Mín: Nú er seinni hálfleikurinn hafinn hér á skaganum og við fylgjumst með og látum vita ef eitthvað markvert gerist.
Hálfleikur: Nú í hlénu var afhent fyrsta eintakið af DVD disk sem útbúinn var í tilefni þess að kynslóðaleikurinn var haldinn hér á Akranesi í fyrra. DVD diskurinn inniheldur leikinn og fleira efni tengt honum. Diskurinn verður seldur og rennur ágóðinn til ungmennastarfs ÍA.
45. Mín: Það er kominn hálfleikur hér á skaganum og staðan óbreytt. Við verðum að vonast til að leikurinn hressist aðeins og við fáum að sjá meiri læti og meiri mörk........þangað til að leikurinn hefjist að þá fáum við okkur bara kaffi og slökum á.
44. Mín: Skipting hér hjá Víkingum en því miður að þá sjást tölurnar á búningum Víkingana mjög illa og því sé ég ekki hver það var sem fór útaf né þann sem kom inná.
40. Mín: Bjarki Gunnlaugsson fékk sendingu frá Guðjóni Heiðari inn í teig og renndi Bjarki sér í boltann og setti hann rétt framhjá.......gott færi!
30. Mín: Víkingar fengu hér dauðafæri og gott tækifæri til að jafna leikinn en þeir fóru virkilega illa að ráði sínu. Þeir voru 3 víkingarnir komnir inn í teiginn á móti Trausta en Sigurður Egill skaut boltanum laflaust framhjá í stað þess að senda á samherja sína eða einfaldlega gera betur!
26. Mín: Skagamenn eru búnir að hressast ansi mikið og hafa átt tvær hættulegar sóknir hér með stuttu millibili.
19. Mín: Það er svosem ekki mikið að gerast hér. Það hefur ekki mikið lifnað yfir leiknum þrátt fyrir markið. Víkingar eru ívið sterkari og pressa mjög stíft á skagamenn sem liggja aftarlega og beita skyndisóknum þegar færi gefst.
10. Mín: Já ég sem var að fara að skrifa að það væri fátt að gerast hér á skaganum þegar Guðjón Heiðar skoraði ágætis mark eftir sókn Skagamanna. Þeir voru tveir skagamennirnir í teig Víkings og höfðu nógan tíma. Skot Guðjóns var fast í slánna og boltinn fór niður og í bak Magnúsar Þormars og inn. Það verður þó að segjast eins og er að þetta mark kemur gegn gangi leiksins. Þetta var fyrsta sókn Skagamanna á meðan Víkingar hafa fengið 4 hornspyrnur.
8. Mín:Mark!!!!! Guðjón Heiðar Sveinsson skorar hér fyrir Skagamenn
1. Mín: Nú er leikurinn hafinn í ágætis veðri hér á skaganum. Vindur en þurrt. Við vonumst eftir skemmtilegum og fjörlegum leik.
20:00: Víkingar gera tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik en Jakob Spangsberg og Sigurður Egill Lárusson koma inn í liðið í stað Grétars Ali Khan sem er á bekknum og Lewis John Ehrlich sem er ekki á skýrslu. ÍA gerir eina breytingu en Guðjón Heiðar Sveinsson kemur inn í stað Ólafs Vals Valdimarssonar sem er á bekknum
19:55: Nú eru fimm mínútur í að leikurinn hefjist. Dómari leiksins hér í kvöld er Gunnar Sverrir Gunnarsson og honum til aðstoðar eru Viðar Helgasson og Haukur Erlingsson
19:50:Lið ÍA: Trausti Sigurbjörnsson, Guðjón Heiðar Sveinsson, Árni Thor Guðmundsson, Heimir Einarsson, Helgi Pétur Magnússon, Andri Júlíusson, Ragnar Leósson, Guðmundur Böðvar Guðmundsson, Hlynur Hauksson, Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, Sölvi G. Gylfasson
Varamenn: Ísleifur Örn Guðmundsson, Gísli Freyr Brynjarsson, Halldór Jón Sigurðsson, Árni Snær Ólafsson, Ólafur Valur Valdimarsson.
Lið Víkings: Magnús Þormar, Knútur Rúnar Jónsson, Jökull I. Elísarbetarson, Egill Atlasson, Jakop Spangsberg Jensen, Christopher Steven Vorenkamp, Walter Hjaltested, Sigurður Egill Lárusson, Daníel Hjaltasson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson
Varamenn: Tómas Guðmundsson, Grétar Ali Khan, Pétur Örn Svansson, Marteinn Briem, Halldór Smári Sigurðsson
19:45: Það er mikil gleði þessa dagana á Akranesi en um helgina fara fram Írskir Dagar sem eru árlegur viðburður á Akranesi. Leikurinn í dag var færður fram að beiðni ÍA vegna Írskra Daga en leikurinn í kvöld markar upphaf þeirra. En nú er leikskýrslan komin í hús og byrjunarliðin koma hér inn von bráðar.
19:40: ÍA & Víkingur áttu síðast við í deildarkeppni þann 23. september 2007 hér á Akranesi. Sá leikur fór 1 - 0 fyrir heimamenn og var það Andri Júlíusson sem skoraði markið. En Andri er búinn að vera ansi heitur fyrir Skagamenn í síðustu leikjum, en hann er skoraði 2 mörk í síðasta leik er Skagamenn unnu ÍR. Gengi liðana í deildinni er búið að vera vonbrigði fyrir forsvarsmenn og stuðningsmenn liðanna. ÍA er sem stendur í 7. sæti deildarinnar með 11. stig, en gætu komist í 5 sætið með sigri hér í kvöld.
Víkingar eru aftur á móti 9. sæti með 8. stig og með sigri kæmust þeir í 7 - 8 sæti. Víkingar spiluðu á móti Haukum í síðustu umferð og töpuðu þeir þeim leik 1 - 3.
19:29: Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍA & Víkings R. í 1.deild karla í knattspyrnu.



