Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 23:52
Brynjar Ingi Erluson
Umfjöllun: Framarar komu til baka og sigruðu TNS
Það var hart bairst í Laugardalnum
Það var hart bairst í Laugardalnum
Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Þór Sigurjónsson
Hjálmar í leiknum í kvöld
Hjálmar í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Þór Sigurjónsson
Sam Tillen skorar úr vítaspyrnunni
Sam Tillen skorar úr vítaspyrnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Þór Sigurjónsson
Fram 2-1 The New Saints F.C.
0-1 Steve Evans ('24)
1-1 Sam Tillen ('33, víti)
2-1 Heiðar Geir Júlíusson ('48)

Fram og The New Saints F.C. frá Wales mættust í 1. umferð Evrópudeildarinnar á Laugardalsvellinum í fínu veðri.

Fram var að leika sinn fyrsta Evrópuleik síðan 1992 og það gegn fyrrum mótherjum Liverpool, er TNS spilaði gegn þeim í undankeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir fjórum árum.

Gestirnir byrjuðu betur, en Matthew Berkeley, framherji TNS fékk dauðafæri strax á 4. mínútu leiks þegar fyrirgjöf kom inn fyrir, en skalli hans fór yfir markið. Aðeins tveim mínútum síðar skoraði Berkeley, en það var dæmt af þar sem hann reyndist brotlegur.

Fyrsta færi Fram kom á 9. mínútu þegar hornspyrna kom inn fyrir á nærstöng og fóru varnarmenn TNS upp í þann bolta, en hann virtist fara í bakið á Hjálmari Þórarinssyni og í stöngina, en varnarmenn TNS náði síðan að hreinsa boltann frá markinu.

Á 24. mínútu dró til tíðinda fyrir gestina þegar Scott Ruscoe sendi boltann fyrir og fór hann yfir Hannes Þór Halldórsson í marki Fram, og þar var mættur fyrirliðinn Steve Evans þar sem hann stangaði knöttinn í markið, en varnarmenn Fram náðu að hreinsa boltann úr markinu, en það var aðeins of seint.

Fjórum mínútum síðar gerðist síðan umdeilt atvik þegar Halldór Hermann Jónsson fékk boltann á hægri kantinn og gaf boltann fyrir, en boltinn virtist hafna í höndina á Steve Evans, en belgíski dómarinn Luc Wouters dæmdi ekkert.

Framarar uppskáru þó á 32. mínútu eftir erfiðið þegar Paul McShane komst í gegn vinstra megin á kantinum inn í vítateig og var felldur og dæmdi dómarinn réttilega vítaspyrnu sem Sam Tillen tók og skoraði örugglega úr í hægra hornið.

Á 35. mínútu gáfu Framarar Scott Ruscoe frítt skot rétt fyrir utan vítateig þar sem enginn pressaði á hann, en Hannes Þór varði skot hans vel. Staðan í hálfleik var því 1-1 og því mátti búast við sterkum síðari hálfleik.

Síðari hálfleik byrjaði ekki illa fyrir heimaliðið, en Heiðar Geir Júlíusson kom Fram yfir á 48. mínútu eftir sendingu af vinstri kantinum sem rann í gegnum vörn TNS og var Heiðar einn með boltann gegn Paul Harrison, markverði TNS og skoraði hann örugglega framhjá honum.

Framarar sóttu stíft eftir það og fengu fín færi ásamt því að Scott Ruscoe sýndi lipra takta fyrir TNS, en hann var atkvæðamestur þeirra í skotunum.

Fram fékk þrjú stórkostleg færi í röð á innan við þrem mínútum. Fyrst þegar Ingvar Þór Ólason skaut innanfótar, en Harrison varði í horn, aðeins mínútu síðar slapp Halldór einn gegn markverði, en reyndi að vippa yfir hann og átti Harrison ekki vandræðum með að grípa boltann.

Hjálmar Þórarinsson fékk svo dauðafæri á 81. mínútu þegar hann fékk boltann á vinstri kantinn og stakk sér inn í teig, en skot hans fór beint á Harrison í markinu, sem kom úr unglingaliði Liverpool eftir fína dvöl þar.

Það má til gamans geta að á lokamínútunum kom Hlynur Atli Magnússon, 18 ára miðjumaður Fram inná í sínum fyrsta leik fyrir meistaraflokk liðsins sem ekki er á undirbúningsmóti (Reykjavíkurmóti eða deildabikar), og er það stór áfangi á byrjun ferilsins að spila í Evrópukeppni þá öllu heldur.

Lokatölur þó 2-1 Fram í vil sem fer með ágætt veganesti til Wales í næstu viku, en það mun verða spennandi leikur þar sem hann er leikinn á gervigrasvelli, en TNS leikur líkt og spútnik lið Stjörnunnar á gervigrasi.

Fram: Hannes Þór Halldórsson, Paul McShane, Ingvar Þór Ólason(Hlynur Atli Magnússon, '87), Kristján Hauksson (F), Halldór Hermann Jónsson, Daði Guðmundsson, Heiðar Geir Júlíusson(Joseph Tillen '70), Samuel Lee Tillen, Hjálmar Þórarinsson, Almarr Ormarsson(Ívar Björnsson '70), Jón Guðni Fjóluson.
Ónotaðir varamenn: Ögmundur Kristinsson, Grímur Björn Grimsson, Alexander Veigar Þórarinsson og Jón Orri Ólafsson.

The New Saints: Paul Harrison (M), Barry Hogan, Thomas Holmes, Steve Evans(F), Phillip Baker(John McKenna '87), Scott Ruscoe, Matthew Berkeley, Jamie Wood, Craig Steven Jones, Conall Murtagh(Alex Darlington, '73) og Daniel Holmes(Christopher Marriott '82).
Ónotaðir varamenn: Lee Williams, Craig Williams, Christian Seargeant og Aeron Edwards.

Aðstæður: Laugardalsvöllurinn var frábær að vana
Dómari: Luc Wouters (Belgía)
Maður leiksins: Kristján Hauksson (Fram)
Slapp
banner