Atli Viðar Björnsson leikmaður FH var að vonum ánægður með 5-0 sigur liðsins á Val í 10. umferð Pepsi-deildar karla á Vodafonevellinum í kvöld. Atli átti mjög góðan leik en auk þess að skora eitt mark sjálfur lagði hann upp tvö.
„Þetta var bara frábær sigur. Það er stórkostlegt að koma á Hlíðarenda og vinna 5-0. Við settum mörk þarna snemma og við vorum í rauninni með þá allan tímann. Þeir voru náttúrulega ekki auðveldir, það er aldrei auðvelt að koma og spila hérna en tölurnar gefa til kynna að þetta hafi verið sannfærandi og ég held að þetta hafi verið það,“ sagði Atli Viðar við Fótbolti.net eftir leikinn.
„Maður getur ekki komið hingað og búist við því að vinna 5-0 en maður hefði kannski getað búist við því að þeir væru brothættir og óöruggir eftir atburði síðustu daga,“ bætti Atli við aðspurður hvort honum hefði getað órað fyrir því að sigurinn yrði svona sannfærandi.
FH er nú í mjög góðum málum á toppi deildarinnar með 30 stig, níu stigum á undan KR í öðru sætinu. Atli segir þó að menn séu ennþá á tánum og ætli alls ekki að fara fram úr sjálfum sér.
„Við erum alls ekki cocky. Við vitum að það er bara næsti leikur. Við vorum í þessari stöðu í fyrra að elta Keflavík og þá vorum við átta stigum á eftir þeim þegar örfáir leikir voru eftir. Við vitum náttúrulega að þetta er ekkert öruggt þegar margir leikir eru eftir. Þetta er fín staða en við vinnum okkur bara áfram,“ sagði Atli Viðar Björnsson að lokum við Fótbolti.net.


