Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 22:45
Magnús Valur Böðvarsson
Andri Marteinsson; Ætlum að njóta augnabliksins
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Andri Marteinsson þjálfari Hauka var gríðarlega sáttur eftir góðan 2-1 sigur sinna manna gegn HK í fyrstu deildinni í kvöld.

,,Ég er ótrúlega sáttur, HK liðið er gríðarlega sterkt lið og þetta var barátta tveggja sterkra liða og það var boðið uppá allt það sem fótbolti getur boðið uppá, vegna þess að það var sótt á báða bóga, marktækifæri á báða bóga, mér fannst við hafa verið rólegri í fyrri hálfleiknum á köflum en ég ákvað að hækka tempoíð í seinni hálfleik og það tókst;" sagði Andri við Fótbolta.net að leik loknum.

,,Leikurinn var í miklu jafnvægi og í engri hættu eftir að við komust í 2-0 en þá kemur þessi gamla klysja að detta niður og ætla halda og þá fáum við á okkur mark þeir voru líka óheppnir að ná ekki að jafna leikinn." sagði Andri en HK liðið fékk nokkur ágæt færi til að jafna undir lokin.

Andri var ánægður með ungu strákana í liðinu og sérstaklega Garðar Geirsson sem skoraði bæði mörk Hauka í kvöld.

,,Ungu strákarnir hafa komið vel inn í þetta og staðið sig frábærlega þegar menn hafa meiðst Garðar (Ingvar Geirsson) skorar hér bæði mörkin okkar og skorar annan leikinn í röð og stóð sig frábærlega. Þá hefur Sindri (Örn Steinarsson) leyst hægri bakvarðarstöðuna vel, þá hafa hinir 2.flokks strákarnir líka komið sterkir inn og reynst gríðarlega mikilvægir fyrir breiddina en við höfum verið smá óheppnir með meiðsli."
Haukar eru eftir sigurinn með 19 stig líkt og topplið Selfyssinga en síðarnefnda liðið á reyndar leik inni.

,,,Við ætlum að njóta augnabliksins núna, við erum í 2.sæti núna og mér finnst það verðskuldað, við byrjum fullan undirbúning fyrir næsta leik gegn Selfossi sem er gríðarlega erfitt verkefni en í þessari deild er einfaldlega allir leikir erfitt verkefni. Það geta allir unnið alla því menn eru að stela stigum af hvor öðrum alveg vinstri hægri. Það gerir deildina opna og skemmtilega."

,,Við settum okkur það markmið fyrir tímabilið að ná 4.sæti en við ætlum okkur að setjast niður eftir fyrri umferðina og mynda okkur ný markmið. Kannski er 4.sætið of lágt markmið en okkur hungrar í meira það er alveg ljóst, hvað gerist í framhaldinu verður svo að koma í ljós," sagði Andri mjög raunsær að lokum.
Slapp
banner